Ægir - 01.06.1983, Blaðsíða 20
Nýjungar í framleiðslu og orkunýtingu í fiskiðnaði
Haukur Baldursson:
Fiskimj öls verksmiðj a
Landssmiðj unnar
Seinnihluta árs 1981 byrjaði Landssmiðjan að
rannsaka hvort möguleiki væri á því að þurrka fiski-
mjöl með því að taka alla gufuna sem kemur frá hrá-
efninu, þjappa henni saman með gufuþjöppu og nota
hana sem eina upphitunarmiðilinn í þurrkhringrás-
inni. Utreikningar benda til þess að þetta passi ágæt-
lega saman og eftir að hafa þurrkað mjöl í tilrauna-
þurrkara og mælt myndun óþéttanlegra lofttegunda,
var sótt um einkaleyfi fyrir aðferðinni og tekin
ákvörðun um að smíða tilraunaverksmiðju sem
afkastaði 1000 kg/klst. af hráefni.
Iðnþróunarsjóður og Iðnrekstrarsjóður lánuðu fé
til verkefnisins og hönnun og smíði var hafin af fullum
krafti. Smíði þeirra tækja, sem ákveðið var að smíða
í Landssmiðjunni, gekk samkvæmt áætlun en eitt
mikilvægasta tækið í verksmiðjunni, gufuþjappan,
sem samkvæmt áætlun var ákveðið að kaupa erlendis
frá, reyndist ekki vera lagervara hjá erlendum fram-
leiðendum og því tafðist verkefnið. Auk þess gerðist
það 1982 að loðnuveiðar lögðust af á íslandi, með
þeim afleiðingum að mikill samdráttur varð í járn-
iðnaði, þannig að það tókst ekki að útvega það fé sem
áætlað var að Landssmiðjan legði í verkefnið. Vinna
við verkefnið hefur því legið niðri að mestu leyti síðan
íjúlí 1982.
Landssmiðjan hefur lokið srníði á flestum tækjum í
verksmiðjuna, gufuþjöppur. uppsetning, einangrun,
stýribúnaður og prófun verksmiðjunnar er þó eftir.
Einkaleyfisskrifstofan sem rannsakar einkaleyfisum-
sóknina telur að hugmyndin sé einkaleyfishæf og því
hefur verið sótt um alþjóðlegt einkaleyfi í 10 löndum.
Kostir verksmiðjunnar:
Aðalkostir verksmiðju Landssmiðjunnar eru þeir
að hún getur notað rafmagn sem eina orkugjafann-
sem er íslensk orka, hún blæs ekki gufu og reyk út1
umhverfið þannig að það er engin loftmengun. Orku-
sparnaður er 80% miðað við aðrar fiskimjölsverk-
smiðjur af hefðbundinni gerð, verðið er sambærileg1
við verð á öðrum fiskimjölsverksmiðjum, aðferðin et
íslensk uppfinning og verksmiðjan getur orðið íslensk
framleiðsla.
í sambandi við þær tölur, sem við gefum upp urn
orkunotkun við þessa aðferð má geta þess að þar er
miðað við það, sem við reiknuðum út við hönnun á til'
raunaverksmiðjunni.
Það er hægt að nota minni orku við þurrkunina en
það kostar stærri hitafleti og dýrari tæki.
Til þess að gera grein fyrir því hvað verksmiðj3
Landssmiðjunnar getur þýtt fyrir ísland má geta þess
að árið 1981 brenndu fiskimjölsverksmiður á íslandj
45.000 tonnum af olíu sem samsvarar 513 Gwst. E
notuð hefði verið aðferð Landssmiðjunnar í fiski'
mjölsverksmiðjum það ár hefði þurft 103 Gwst til
þess að framleiða sama magn af mjöli. Orkusparn'
aðurinn, 410 Gwst, væri jafn mikill og orkunotku11
Járnblendiverksmiðjunnar eða samanlögð öll orku'
notkun Reykvíkinga.
Við höfum hannað verksmiðjuna miðað við fisk>'
mjöl en í raun er þetta ný þurrkaðferð og því er hsg1
að beita henni við þurrkun á öðrum framleiðslu'
vörum svo sem kjötmjöli, mjólkurdufti, manneld*s'
mjöli og jafnvel heyi.
Þörf fyrir verksmiðju Landssmiðjunnar:
Það kann kannski einhverjum að þykja undarlegj
að við í Landssmiðjunni skulum vera að berjast V1
hönnun fiskimjölsverksmiðju þegar ekki er dreg'1111
300 —ÆGIR