Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1983, Side 58

Ægir - 01.06.1983, Side 58
SKIPSTAPAR OG SLYSFARIR Hafrún ÍS strandaði undir Stigahlíð ,,Hafrún“ var byggð á Akureyri árið 1967, 41-'' brl. að stærð, tveggja þilfara. Var þetta eitt a okkar glæsilegustu skipum og hafði alla tíð, fral11 til þessa, reynst afla- og happaskip. Eigandi var Einar Guðfinnsson h/f, Bolungavík. Ákveðið hefur verið af viðkomandi tryggingar' félagi, að björgun skipsins verði ekki reynd. ,,Hafrún“ ÍS 400 (ex ,,Eldborg“), strandaði undir Stigahlíð (sjá kort) þann 2. mars s.l. Var ,,Hafrún“ að koma úr róðri, sem hún hafði lagt upp í um níuleytið um morguninn, en vegna veðurs voru aðeins þrjár trossur dregnar, þegar ákveðið var að halda til lands. Meðan skipið var að veiðum fór rafmagnið af og þegar skipt var frá ljósavél yfir á rafal aðalvélar, bilaði annar dýptarmælirinn og annar radarinn, en hinn var bilaður áður en lagt var í róðurinn. Hálftíma eftir að lagt var af stað, eða um klukkan 14.30, strandaði svo skipið. Við sjópróf kom fram, að rétt áður en skipið strandaði hafði skipstjórinn tekið eftir því að óðum grynnkaði undir skipinu og er honum varð litið út um glugga, sá hann fjöruna og setti á fulla ferð afturábak. Um það bil sem skipið var að stöðvast, tók það niðri og álítur skipstjórinn að munað hafi aðeins sekúndum að komist hefði verið hjá strandinu. Svarta bylur var á þegar þetta gerðist. Skipstjóri í þessari veiðiferð var Finnbogi Jakobsson, en á skip- inu var 11 manna áhöfn. Á þeim slóðum sem ,,Haf- rún“ strandaði er mjög aðdjúpt og venja að sigla nærri landi. Er þá 20 faðma jafndýpislínunni fylgt. Hvað þarna fór úrskeiðis er erfitt að gera sér grein fyrir, en áður en stefnan var sett til lands, var staðarákvörðunin tekin með loran og að stefnunni ákvarðaðri var sjálfstýringin sett á. Hallast menn helst að því, að sjálfstýr- ingin hafi orðið fyrir bilun vegna rafmagnstruflananna sem áður er getið. Hafrún á strandslað itndir Stigahlið. 338 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.