Ægir - 01.02.1984, Side 20
Stór útgerðarfyrirtæki með yfir 10 milljón króna
höfuðstól eru nokkur í Japan. Þessi skip stunda
veiðar á fjarlægum miðum, svo sem togveiðar, tún-
fiskveiðar á línu, hvalveiðar og laxveiðar í net.
Stjórnun fiskveiða í Japan
í Japan er fiskveiðum stjórnað annað hvort beint af
fiskimálaráðuneytinu í Tokyo eða þá af hinum ein-
stöku fylkisstjórnum. Tilgangur þessara afskipta hins
opinbera er að samræma hina einstöku þætti veið-
anna, efnahagslega og pólitískt og einnig að stuðla að
skynsamlegri nýtingu á auðlindum hafsins.
Ráðuneytið gefur leyfi til túnfiskveiða, hvalveiða
o.fl. á fjarlægum miðum. Það ákveður einnig skipa-
fjölda, stærð skipa og gerð veiðarfæra.
Stjórnir einstakra fylkja ákveða um veiðar smærri
skipa á grunnmiðum og eru þær allar bundnar leyfum.
Fylkisstjórarnir ákveða veiðar með lagnetum, rétt
til fiskeldis og almennan rétt til veiða á grunnmiðum.
Þær skipta einnig veiðisvæðum milli einstakra út-
gerðaraðila bæði með tilliti til almennra veiða svo og
til fiskeldis.
Vandamál í fiskveiðum Japana
Eins og að framan getur þá eru fiskveiðar Japana
ákaflega miklar að vöxtum. Það er samt sem áður
ekki hagkvæmt að hafa of mörg veiðiskip til þess að
ná þessu magni.
Það eru ýmis vandamál fjárhagslegs eðlis í veiðum
okkar. Eitt þeirra er að sóknin er of mikil, en eins og
að framan getur eru um 220 þúsund útgerðir í land-
inu, stórar og smáar og 460 þúsund fiskimenn. Mest
er hér um að ræða einn mann á bát á grunnslóð.
Mikill kostnaður við nýbyggingar og stóraukinn
veiðibúnaður hjá skipum af stærðinni tíu til eitt þús-
und tonn gerir útgerðinni erfitt fyrir, en skip af þessari
stærð eru meginundirstaðan í veiðum Japana. Að
meðaltali er hlutfall skulda af eignum um 90% hjá
þessum fyrirtækjum og eru þau því óburðug fjárhags-
lega. Vaxtakostnaður og afborganir eru því mikill
baggi á þessum útgerðum. Ef bannaðar yrðu loðnu-
veiðar í Japan eins og þið látið ykkur hafa það, þá
held ég að yrði smáuppreisn í japönskum fiskiðnaði.
Útfærsla efnahagslögsögu í 200 sjómílur hjá nágrönn-
um okkar og hækkun olíuverðs hafa þó skapað mun
flóknari vandamál.
Annað atriði sem nefna má er það, að ungt fólk er
frábitið fiskáti vegna beinanna í fiskinum. Hús-
mæðrum geðj ast ekki að lyktinni af soðnum fiski, t. d.
sardínum og vegna tímans sem tekur að sjóða fiskinn.
Japanir sækjast meira eftir rækjum og hrognum úr
fiski og innflutningur á þessum afurðum eykst stöð-
ugt. Stærstu útgerðarfyrirtækin hafa farið út í ýmsan
annan rekstur og hafa jafnvel meiri tekjur af því en
sjálfum veiðunum.
Auk þess má nefna að ástand fiskstofna við Japan
er alls ekki gott, nema þá helst er varðar sardínur og
bónító. Erfitt fjárhagsástand útgerðarinnar leiðir til
þess að meira er sóst eftir dýrari tegundum.
Eftirfarandi tafla sýnir nýtingu á sardínu og makríl
árið 1980 (þús. tonna).
Til manneldis Til annars
Nýr ívinnslu Fiskimjöl Fiskafóður. Alls
Sardína . 120 650 900 770 2240
Makríll . 120 730 70 380 1300
Nú er farið að framleiða pasta úr sardínum og líkist
það einna helst íslenskum fiskibollum.
Að minni hyggju er fyrirmyndarveiði sú veiði, þar
sem jafnvægi er á milli skynsamlegrar nýtingar stofn-
anna, bestrar afkomu fiskimannanna og bestrar nýt-
ingar landaðs afla.
Hjá hinum þróuðu þjóðum hafa margir fiskstofnar
verið ofnýttir og þróunarþjóðum hefur einnig reynst
erfitt að halda samræmi á milli hinna þriggja þátta,
sem að ofan greinir. Þó þróunarlöndin ráði mörg hver
yfir ónytjuðum fiskstofnum, er framboð fisks og
neysla hans takmörkuð vegna ófullnægjandi veiði-
tækni, skorts á geymslurými og lélegra samgangna
svo sem í mörgum ríkjum Afríku og Suðaustur-Asíu.
í þessum löndum er fisks aðeins neytt á eða nálægt
löndunarstað; fiskflutningur til fjarlægra staða eru
mjög erfiðir og þar er fiskur í mjög háu verði.
Yfirlit um fiskirannsóknir í Japan
Kerfisbundnar rannsóknir á fiskstofnum við Japan
eru framkvæmdar af rannsóknastofnunum ríkisins,
sem heyra undir fiskveiðadeild landbúnaðar- og fiski-
málaráðuneytisins. Auk þess eru rannsóknir þessar
framkvæmdar af fiskitilraunastöðvum hinna einstöku
fylkja.
Japansmiðum er skipt í sex svæði í samræmi við út-
breiðslu fiskstofna og ástand sjávar. Alls eru rann-
sóknastofnanir þessar sex að tölu og eru þær þessat
(5. mynd):
Norður rannsóknastofnunin í Hokkaido; norð-
austur rannsóknastofnunin í Shiogama; miðsvæðis
68-ÆGIR