Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1984, Síða 54

Ægir - 01.02.1984, Síða 54
Erlingur Hauksson, sjávarlíflræðingur: Selveiðamar 1982 Inngangur Pessi grein fjallar um árangurinn af selveiði- greiðslunum á vegum Hringormanefndar síðastliðið ár (1982). Hvernig selveiðarnar skiptast niður eftir uppruna veiðimanna, veiðitíma, strandsvæðum, teg- undum og hvort sé um að ræða kópa eða fullorðin dýr. Einnig eru veiðarnar 1982 bornar saman við veiðar síðustu 10 ára og reynt að meta hugsanleg áhrif þeirra á selastofnana hér við land. Árið 1982 var verðlaunagreiðslum þannig háttað: Fyrir landselskópa voru greiddar 100 kr, fyrir útsels- kópa 250 kr., fyrir fullorðna landseli (eldri en 1 árs) 500 kr. og fyrir fullorðna útseli 700 kr. Sú breyting var gerð á verðlaunagreiðslunum í byrjun ágústmánaðar, að hætt var að mestu að greiða fyrir veiði landsela, en einungis greitt fyrir útseli auk þess sem þá var byrjað að greiða fyrir selkjöt, 7 kr. á kg útselskópaskrokka, en áður höfðu verið greiddir 50 aurar á kg selskrokka komna í frystihús. Veiðarnar Eins og fram kemur í töflu 1A eru sjómenn algeng- ustu þátttakendurnir í selveiðinni s.l. ár, en hlunn- indabændur í öðru sæti. Sportveiðimenn eru færri. í flokkinn aðrir eru settir þeir, sem upplýsingar skortir um og undirritaður. Hvað heildarveiði og meðalveiði snertir (Tafla 1B og C) eru hlunnindabændur í efsta sæti, en sjómenn í öðru. Þetta fer þó nokkuð eftir tegundum og hvort um kópa eða fullorðin dýr er að ræða. Til dæmis hafa sjómenn veitt fleiri fullorðin dýr en bændur ef á heild- ina er litið, en meðalfjöldi fullorðinna landsela er þó meiri hjá hlunnindabændum en sjómönnum. Veiði sportveiðimanna er mjög lítil á heildina litið, mest fullorðin dýr. Hvað varðar kópaveiðar, bæði útsels og landsels, eru hlunnindabændur nær einráðir eins og gefur að skilja. Nokkuð kom þó af kópum í hrognkelsanet sjómanna. Mest veiddist af landselskópum eða alls 2.367, þá útselskópum eða 1.154, en minna af fullorðnum dýrum (Tafla 1B). Mest er veiðin í Breiðafirði, eða um 40% veiddra dýra, en svæðið Strandir-Húnaflói-Skagafjörður fylgir fast á eftir. Á því svæði (4) er mesta landsels- kópaveiðin, en útselskópaveiðin er mest í Breiða- firði. Flest fullorðin dýr veiddust aftur á móti við Vestfirði og á svæði 4 (Tafla 2B). Mánuðurnir júní, júlí og október eru mestu sel- veiðimánuðirnir. Þá veiddust nær 90% allra sela. Landselskópaveiðin (vorkópaveiðin) er að mestu bundin við júní og júlí en einnig veiðist meira af full- orðnum dýrum á þessu tímabili en á öðrum árstím- um. Útselskópaveiðin (haustkópaveiðin) er aftur á móti bundin við mánuðina október og nóvember og þá eykst einnig veiði fullorðinna útsela nokkuð (Tafla 2A). Selveiðarnar 1982 og veiðar fyrri ára Selveiðar hér við land eru jafngamlar búsetu manna. í fyrstu var hér eingöngu um veiðar fyrir eigin þarfir að ræða, en seint á nítjándu öld hófst útflutn- ingur á selskinnum. Frá þeim tíma er hægt að henda reiður á fjölda veiddra sela við landið. Er þannig hægt að fá upplýsingar með nokkurri vissu um selveiðar alH frá árinu 1897, úr fiski- og hlunnindaskýrslum árin 1897-1945 og verslunarskýrslum frá 1946 og fram á okkar dag. Meðalselveiði á ári var um 6.000 dýr á tímabilinu 1897-1919, en síðan minnkar veiðin verulega og nær lágmarki á árunum 1939-1959, um 2.500 dýr á ári að meðaltali. Pessi minnkun í veiði stafar líklega ekki af ofveiði, heldur hafa margir þættir komið hér við sögu 102 - ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.