Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1984, Page 22

Ægir - 01.07.1984, Page 22
Jón Þ. Þór: Komur breskra togara til ísafjarðar 1952-1974 og viðskipti þeirra við land Með lögum, sem samþykkt voru á alþingi sumarið 1897 og staðfest af Danakonungi 6. apríl 1898, var breskum togurum, er veiðar stunduðu hér við land, heimilað að leita til íslenskra hafna og afla sér þar vatns, vista og kola.1 í 2. grein landhelgissamningsins frá 24. júní 1901 var þetta atriði ítrekað, en þar sagði: „Grein þessi skerðir í engu hinn viðurkennda rjett fiskiskipa, er sigla eða kasta akkerum í landhelgi, til óheppt að fara ferða sinna þar gegn því að hegða sjer eptir þar að lútandi dönskum lögreglu-tilskipunum, þar á meðal þeirri, að botnvörpuskipi skuli meðan þau eru í landhelgi hafa botnvörpur sínar í búlka innanborðs.“2 Með þessu ákvæði var breskum togurum, sem veiðar stunduðu hér við land, veittur frjáls réttur til siglingar á íslenksar hafnir, svo fremi þeir hefðu veiðarfæri sín búlkuð á meðan þeir væru innan land- helgi. Þennan rétt notfærðu togaramenn sér tíðum þá þrjá aldarfjórðunga, sem þeir áttu eftir að veiða hér við land eftir að samningurinn var gerður. Margir íslendingar muna tíðar komur togaranna til íslenskra hafna og þar var aldrei neitt launungarmál, að togara- menn áttu mikil viðskipti við landsmenn. En hversu mikil? Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna komu- tíðni breskra togara til ísafjarðar á árunum 1952- 1974, erindi þeirra til hafnar og viðskipti togara- manna við ísfirðinga. ísafjörður var ein þeirra hafna, sem togararnir komu hvað oftast til á Islandi, og hann hefur orðið fyrir valinu vegna þess, að mér eru til- tækar all ítarlegar heimildir um togarakomurnar þangað á þessu tímabili. Þessar heimildir eru togarabækur Guðmundar Karlssonar, en hann var umboðsmaður breskra tog- ara og jafnframt breskur konsúll á ísafirði. Togara- bækurnar ná yfir árin 1952-1974 og eru í þeim taldar allar komur breskra togara til ísafjarðar á þessum árum, skipin nafngreind, skýrt frá erindi hvers ogems og þess getið, hve mikið hvert skip greiddi við hverja komu. Verður nú vikið að einstökum þáttum þessa máls, en þó ber að taka skýrt fram, að hér er aðeins um frumathugun að ræða, margir þættir bíða enn ítar' legri rannsóknar. 1. Komufjöldi breskra togara til ísafjarðar 1952-1974 Til þess að átta sig sem best á komutíðni breskra togara til ísafjarðar á ofangreindu árabili, er þ®S|' legast að setja upp töflu. Taflan hér á eftir er gerð eft|r togarabókunum, sem áður voru nefndar og sýmr komufjöldann í hverjum mánuði á árunum 195?' 1974. Eins og þessi tafla ber með sér var mikill munui a því, hve oft breskir togarar komu til ísafjarðar á áruu- um 1952-1958 annars vegar og 1961-1974 hins vegaT Árið 1952 komu breskir togarar aðeins 9 sinnum t* hafnar á ísafirði og enginn á tímabilinu frá ágúst og11 ársloka. Á árunum 1953 og 1954 koniu að meðalta^ rúmlega tveir togarar til hafnar á mánuði, en 19?- varð aftur á móti nokkur fækkun og þá voru fjór,r mánuðir, sem alls enginn togari kom. Fyrra helmiug ársins 1956 kom enginn breskur togari til ísafjarðar' en 1957 fjölgaði komu þeirra verulega og á fyrri hluta ársins 1958 komu hartnær jafnmargir togarar og al árið 1957. Engin einhlít skýring virðist vera á því, hvers veguJ komur togaranna til ísafjarðar voru svo óstöðug‘,r frá einu ári til annars á þessu tímabili. Sókn bresk1' togaraflotans á Islandsmið jókst mjög á árunum eft*r heimsstyrjöldina eins og best sést af því, að árið 19 fóru breskir togarar 470 veiðiferðir á íslandsmið-L,r yfir 3000 árið 1950.3 Á árunum fyrst eftir 1950 sótt11 350-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.