Ægir - 01.01.1985, Side 22
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur:
Alþjóðaþing haffræðinga
í Halifax, Nýja Skotlandi
2.-13. ágúst 1982
Inngangur
í grein í Ægi 1982 (1) sagöi frá alþjóðaþingi haf-
fræðinga í Halifax, Nýja Skotlandi, haldið 2.-13.
ágúst 1982 (1. mynd). Þing þessi eru haldin á sex ára
fresti og ganga undir nafninu „Joint Oceanographic
Assembly“ (JOA). Þingið sátu um 850 haffræðingar.
í lok greinarinnar 1982 var skrifað að nánar yrði sagt
frá þinginu síðar í Ægi, og verður hér reynt að standa
við það. Hefst þá leikurinn með spjalli um haf-
strauma.
Hafstraumar Norður-Atlantshafs
a. Hafstraumar Norður-Atlantshafs voru sérstakt
viðfangsefni á ráðstefnunni. Af þeim vettvangi má
m.a. nefna að nýlegar kenningar eða hugmyndir um
að „Golfstraumurinn“ nái ekki til austurhluta
1. mynd. Nokkrir ráðstefnugestir á JOA 1982.
10-ÆGIR
Atlantshafsins og stranda Evrópu eru á undanhaldi
(2. og 3. mynd). Fremur er um skiptingu að ræða,
straumkvísl sem hvirflast aftur í vesturátt til nýja
heimsins og aðrar sem hvirflast norðaustur á bóginn í
áttina til gamla heimsins (2, 3).
b. Rannsóknir á straumum úthafanna byggjast
reyndar í sívaxandi mæli á nýjum aðferðum. Meðal
þeirra eru rannsóknir á dreifingu á óstöðugum snefil-
efnum af völdum tilrauna með kjarnorkuvopn eða
losun og frárennsli slíkra efna frá kjarnorkuverum
(4); og straummælingar frá duflum, m.a. rekduflum.
sem fylgst er með frá gervihnöttum (4. mynd (5)).
c. Fjarkönnun með gervihnöttum virðist þannig
nú loks nálgast það stig að hún teljist marktæk fyrir
hafrannsóknir. Má þar nefna athuganir á vindum og
straumum með fjarlægðarmælingum, blaðgrænu með
litrófsmælingum og sjávarhita með míkróbylgjum
sem láta skýjahulu ekki á sig fá, eins og innrauðu
geislarnir. íslendingar ættu nú að geta elft hafrann-
sóknir sínar með fjarkönnun frá flugvélum og gervi-
hnöttum, og var ég reyndar hvattur til að koma því á
framfæri hér heima. í því sambandi skal nefna að á
vegum Rannsóknaráðs ríkisins starfar nú svonefnd
„fjarkönnunarnefnd“, þarsem Markús Á. Einarsson,
veðurfræðingur er formaður. Áður hafði samskonar
nefnd skilað áliti (6), og er verkefnið nú að endur-
meta stöðu mála.
d. Norður- og Suðurhöf eru á margvíslegan hátt
enn órannsökuð, en mikil umsvif eiga sér nú stað á
þeim vettvangi (5. mynd (5)). Er þá bæði um veður-
farsathuganir að ræða og nýtingu auðlinda, lifandi og
dauðra. Islendingar reyna eftir föngum að fylgjast
með því sem gerist í Norðurhöfum, en virk þátttaka
okkar verður þó að teljast í lágmarki. Þessi mál hafa
m.a. verið til umræðu við framkvæmdastjóra Rann-
sóknaráðs ríkisins og verður væntanlega framhald á-
Nefna má, að dr. Þór Jakobssyni og höfundi þessa
k