Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1985, Page 22

Ægir - 01.01.1985, Page 22
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur: Alþjóðaþing haffræðinga í Halifax, Nýja Skotlandi 2.-13. ágúst 1982 Inngangur í grein í Ægi 1982 (1) sagöi frá alþjóðaþingi haf- fræðinga í Halifax, Nýja Skotlandi, haldið 2.-13. ágúst 1982 (1. mynd). Þing þessi eru haldin á sex ára fresti og ganga undir nafninu „Joint Oceanographic Assembly“ (JOA). Þingið sátu um 850 haffræðingar. í lok greinarinnar 1982 var skrifað að nánar yrði sagt frá þinginu síðar í Ægi, og verður hér reynt að standa við það. Hefst þá leikurinn með spjalli um haf- strauma. Hafstraumar Norður-Atlantshafs a. Hafstraumar Norður-Atlantshafs voru sérstakt viðfangsefni á ráðstefnunni. Af þeim vettvangi má m.a. nefna að nýlegar kenningar eða hugmyndir um að „Golfstraumurinn“ nái ekki til austurhluta 1. mynd. Nokkrir ráðstefnugestir á JOA 1982. 10-ÆGIR Atlantshafsins og stranda Evrópu eru á undanhaldi (2. og 3. mynd). Fremur er um skiptingu að ræða, straumkvísl sem hvirflast aftur í vesturátt til nýja heimsins og aðrar sem hvirflast norðaustur á bóginn í áttina til gamla heimsins (2, 3). b. Rannsóknir á straumum úthafanna byggjast reyndar í sívaxandi mæli á nýjum aðferðum. Meðal þeirra eru rannsóknir á dreifingu á óstöðugum snefil- efnum af völdum tilrauna með kjarnorkuvopn eða losun og frárennsli slíkra efna frá kjarnorkuverum (4); og straummælingar frá duflum, m.a. rekduflum. sem fylgst er með frá gervihnöttum (4. mynd (5)). c. Fjarkönnun með gervihnöttum virðist þannig nú loks nálgast það stig að hún teljist marktæk fyrir hafrannsóknir. Má þar nefna athuganir á vindum og straumum með fjarlægðarmælingum, blaðgrænu með litrófsmælingum og sjávarhita með míkróbylgjum sem láta skýjahulu ekki á sig fá, eins og innrauðu geislarnir. íslendingar ættu nú að geta elft hafrann- sóknir sínar með fjarkönnun frá flugvélum og gervi- hnöttum, og var ég reyndar hvattur til að koma því á framfæri hér heima. í því sambandi skal nefna að á vegum Rannsóknaráðs ríkisins starfar nú svonefnd „fjarkönnunarnefnd“, þarsem Markús Á. Einarsson, veðurfræðingur er formaður. Áður hafði samskonar nefnd skilað áliti (6), og er verkefnið nú að endur- meta stöðu mála. d. Norður- og Suðurhöf eru á margvíslegan hátt enn órannsökuð, en mikil umsvif eiga sér nú stað á þeim vettvangi (5. mynd (5)). Er þá bæði um veður- farsathuganir að ræða og nýtingu auðlinda, lifandi og dauðra. Islendingar reyna eftir föngum að fylgjast með því sem gerist í Norðurhöfum, en virk þátttaka okkar verður þó að teljast í lágmarki. Þessi mál hafa m.a. verið til umræðu við framkvæmdastjóra Rann- sóknaráðs ríkisins og verður væntanlega framhald á- Nefna má, að dr. Þór Jakobssyni og höfundi þessa k

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.