Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1985, Page 39

Ægir - 01.01.1985, Page 39
LÖG OG REGLUGERÐIR LÖG Uni atvinnuréttindi vélfræðinga, vél- stjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Forseti Islands Slörir kunnugt: Alþingi hcfur fallist á Iög þessi og ég staðfest Nu nteð samþykki mínu: I. KAFLI a. b. c. d. e. Orðaskýringar. 1- gr- ■ firvélstjóri er æð6ti maður í vélarrúmi skips. 1 • vélstjóri (í eldri lögum 2. vélstjóri) er næstæðsti maður vélarrúms. Undirvélstjóri er hver sá vélstjóri sem cr lægra settur en yfirvélstjóri. Vélstjóri er hver sá sem ráðinn er til vélstjórastarfa. 1 kílówatt (kw.) = 1,36 hö. II. KAFLI Um fjölda vélstjóra og vélavarða o.fl. ... . 2. gr. Fjöldi vélavarða og vélstjóra á íslenskum skipum skal vera sem hér segir: a- Á skipi með 75-220 kw. vél (u.þ.b. 101-300 hö.) einn vélavörður. D- Á skipi með 221-750 kw. vél (u.þ.b. 301-1020 hö.) yfir- vélstjóri og einn vélavörður. c- A skipi með 751-1500 kw. vél (u.þ.b. 1021-2040 hö.) tveir vélstjórar. yfirvélstjóri og 1. vélstjóri. Á skipi með stærri vél en 1500 kw. (u.þ.b. 2040 hö.) þrír vélstjórar. yfirvélstjóri og tveir undirvélstjórar. A farþega- og flutningaskipum með 1300 kw. vél (u.þ.b. 11 hö.) og stærri skal auk upptalinna vélstjóra vera einn velavörður eða aðstoðarmaður. in. rv/Ai i.1 Um atvinnuréttindi vélstjóra. S-- . . 3’gr' a sern lokið hefur vélstjóranámi 1. stigs hcfur öðlast i lil að vera vélavörður á skipi. Atvinnuskírteini: Vélavörður (VV). Á* sem lokið hctur vélstjóranámi 2. stigs hefur öðlast í til að vera vélavörður á skipi. Atvinnuskírteini: Vélavörður (VV). Að loknum 9 mánaða starfstíma sem vélavörður á ski Þaraf a.m.k. 5 mánuði á skipi með400-750 kw. vél. he hann öðlast rétt til að vera yfirvélstjóri á skipi með 750 kw. vél og minni. Atvinnuskírtc'ni: Vélstjóri III (VS III). 3. Sá sem lokið hefur vélstjóranámi 3. stigs hefur öðlast rétt til að vera vélavörður á skipi. Atvinnuskírteini: Vélavörður (VV). Að loknum 6 mánaða starfstíma sem vélavöröur á skipi með 400-750 kw. vél hefur hann öðlast rétt til að vera yfirvélstjóri á skipi með 750 kw. vél og minni. Atvinnuskírteini: Vélstjóri III (VS III). Að loknum 12 mánaða starfstíma scm vélavörður eöa vélstjóri á skipi með 400 kw. vél og stærri hefur hann öðl- ast rétt til að vera I. vélstjóri á skipi meö 1500 kw. vél og minni. Atvinnuskírteini: Vélstjóri II (VS II). Að loknum 12 mánaða starfstíma sem vélstjóri á skipi, þar af a.m.k. 3 mánuði við 750 kw. vél og stærri. hefur liann öðlast rétt til að vera yfirvélstjóri á skipi meö 1500 kw. vél og minni og 2. vélstjóri á skipi með ótakmarkaða vélarstærð. Atvinnuskírteini: Vélstjóri II (VS I). 4. Sá sem lokið hcfur vélstjóranámi 4. stigs, ásamt sveins- prófi í viðurkenndri málmiönaðargrein (þ.e. vélfræðing- ur), hefur öðlast rétt til að vera 1. vélstjóri á skipi með 1500 kw. vél og minni og 2. vélstjóri á skipi með ótak- markaða vélarstærð. Atvinnuskírteini: Vélfræðingur IV (VF IV). Að loknum 6 mánaða starfstíma sem vélstjóri á skipi með 750 kw. vél og stærri hefur hann öðlast rétt til að verayfir- vélstjóri á skipi með 1500 kw. vél og minni. Atvinnuskírteini: Vélstjóri I (VS I). Að loknum 12 mánaða starfstíma scm vélstjóri á skipi með 750 kw. vél og stærri hefur hann öðlast rétt til aö vera 1. vélstjóri á skipi með ótakmarkaða vélarstærð. Atvinnuskírteini: Vélfræðingur III (VF III). Að loknum 24 mánaöa starfstíma sem vélavörður eða vélstjóri á skipi, þar af í 12 mánuði að fengnu atvinnu- skírteini VF III, hefur hann öðlast rétt til að vera yfirvél- stjóri á skipi með 3000 kw. vél og minni. Atvinnuskírtcini: Vélfræðingur II (VF II). Að loknum 36 mánaða starfstíma sem vélavörður eða vélstjóri á skipi, þar af a.m.k. 12 mánuði sem 1. vélstjóri á skipi með 1500 kw. vél og stærri, hcfur hann öðlast rétt til að vera yfirvélstjóri á skipi með ótakmarkaða vélar- stærð. Atvinnuskírteini: Vélfræðingur I (VF I). 5. Við mat á starfstíma til atvinnuréttinda er heimilt að taka tillit til starfsreynslu við vélstjórn við aðrar stærðir véla en að framan greinir. 4. gr. Starfstími vélstjóra samkvæmt 2. gr. telst sá tími sem hann er lögskráður á skip og vinnur við það, aö meðtöldum lög- skráningardegi og afskráningardegi. Til starfstíma samkvæmt 3. og 4. lið 3. gr. má einnig telja ÆGIR-27

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.