Ægir - 01.01.1985, Side 60
Mynd 6.
Mynd 7.
Fyrst að getið er um framangreinda lokun hér, er
ekki úr vegi að nefna lokun í öðru skipi, sem er mun
eldri, og tengist einnig umfjöllun hér aðframan. Skip
þetta er Víkingur AK frá því að hann var síðutogari.
Árið 1967 var honum breytt tímabundið til síldveiða
með nót og sett í hann bógskrúfa og stýrisskrúfa.
Síðar voru skrúfurnar fjarlægðar og göngum að
framan lokað. Skipstjóri skipsins á þeim tíma upp-
lýsti að breytinga hefði orðið vart með tilliti til
ganghraða við hliðarskrúfuísetningu og lokun síðar.
Hins vegarer erfitt að nefna tölur, þar sem rafmagns-
vegmælir var ekki í skipinu og langt um liðið.
Útreikningar hér að framan fyrir Víking AK,
byggðir á ákveðnum forsendum, gáfu til kynna ca.
0.3 hn ganghraðamíssi með opin göng, þ.e. tölur af
slíkri stærðargráðu að þeirra geturorðið vart í rekstri.
Vangaveltur um frágang
Ýmsar ástæður hafa verið nefndar fyrir því að
mótstaða myndist af hliðarskrúfugöngum.
Ein kenningin er að sjór flæði í gegnum göngin og
Mynd 8.
Mynd 9.
valdi aukinni mótstöðu. Ekki verður í fljótu bragði
séð, hvernig það má vera, því að ætla má að þegar
skip siglir og sjór rennur fyrir opin á göngunum
myndist undirþrýstingur inni í göngunum vegna
„jektoráhrifa". Inni í göngunum myndast þannig
stöðugt ástand, sem m.a. kemur fram í því að áhrifa-
máttur hliðarskrúfu minnkar mjög hratt, þegar skipið
sigliraf stað. þannig verður hliðarskrúfan mjögafllítil
strax við 3-4 hn hraða. Til þess að auka virkni hlið-
arskrúfu við þessar aðstæður hefur verið sett opið rör
þversum gegnum bolinn, rétt aftan við hliðarskrúf-
una. Einnig hafa tvær skrúfur verið settar hvor fyrir
aftan aðra, en hér verður ekki farið nánar út í þessi
atriði.
Annað atriði er það sem kalla mætti hamlandi
mótstaða, þ.e. mótstaða vegna þess að göngin og sú
röskun, sem verður á bol skipsins við þau, hamla
eðlilegt streymi sjávarins aftur með bolnum. Frá-
gangur í endum ganganna er mjög misjafn eftir
skipum, og verða hér sýnd nokkur dæmi:
Á mynd 6 kemur rörið heilt út úr síðunni, og ristar,
48-ÆC1R