Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1985, Síða 60

Ægir - 01.01.1985, Síða 60
Mynd 6. Mynd 7. Fyrst að getið er um framangreinda lokun hér, er ekki úr vegi að nefna lokun í öðru skipi, sem er mun eldri, og tengist einnig umfjöllun hér aðframan. Skip þetta er Víkingur AK frá því að hann var síðutogari. Árið 1967 var honum breytt tímabundið til síldveiða með nót og sett í hann bógskrúfa og stýrisskrúfa. Síðar voru skrúfurnar fjarlægðar og göngum að framan lokað. Skipstjóri skipsins á þeim tíma upp- lýsti að breytinga hefði orðið vart með tilliti til ganghraða við hliðarskrúfuísetningu og lokun síðar. Hins vegarer erfitt að nefna tölur, þar sem rafmagns- vegmælir var ekki í skipinu og langt um liðið. Útreikningar hér að framan fyrir Víking AK, byggðir á ákveðnum forsendum, gáfu til kynna ca. 0.3 hn ganghraðamíssi með opin göng, þ.e. tölur af slíkri stærðargráðu að þeirra geturorðið vart í rekstri. Vangaveltur um frágang Ýmsar ástæður hafa verið nefndar fyrir því að mótstaða myndist af hliðarskrúfugöngum. Ein kenningin er að sjór flæði í gegnum göngin og Mynd 8. Mynd 9. valdi aukinni mótstöðu. Ekki verður í fljótu bragði séð, hvernig það má vera, því að ætla má að þegar skip siglir og sjór rennur fyrir opin á göngunum myndist undirþrýstingur inni í göngunum vegna „jektoráhrifa". Inni í göngunum myndast þannig stöðugt ástand, sem m.a. kemur fram í því að áhrifa- máttur hliðarskrúfu minnkar mjög hratt, þegar skipið sigliraf stað. þannig verður hliðarskrúfan mjögafllítil strax við 3-4 hn hraða. Til þess að auka virkni hlið- arskrúfu við þessar aðstæður hefur verið sett opið rör þversum gegnum bolinn, rétt aftan við hliðarskrúf- una. Einnig hafa tvær skrúfur verið settar hvor fyrir aftan aðra, en hér verður ekki farið nánar út í þessi atriði. Annað atriði er það sem kalla mætti hamlandi mótstaða, þ.e. mótstaða vegna þess að göngin og sú röskun, sem verður á bol skipsins við þau, hamla eðlilegt streymi sjávarins aftur með bolnum. Frá- gangur í endum ganganna er mjög misjafn eftir skipum, og verða hér sýnd nokkur dæmi: Á mynd 6 kemur rörið heilt út úr síðunni, og ristar, 48-ÆC1R

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.