Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1985, Side 6

Ægir - 01.07.1985, Side 6
Sveinn Jónsson, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins: Notkun ensíma í íslenskum iðnaði Inngangur Ensím eru lífrænir efnahvatar, sem stuðla að flestum þeim efna- breytingum, sem eiga sér stað í lifandi verum. Ensím eru mjög sérhæfðir hvatar, þ.e.a.s. virkni hvers þeirra nær aðeins til eins eða mjög fárra efnasambanda. Að þessu leyti eru ensímin ólík flestum ólífrænum efnahvötum. Þar sem ensím eru prótein (eggja- hvítusambönd) er virkni þeirra mjög háð ýmsum umhverfis- þáttum eins og t.d. hita- og sýru- stigi. Þegar á síðustu öld var það fundið að ýmsar efnabreytingar, sem eiga sér stað í lifandi frumum geta einnig gerst í vatnslausnum, sem innihalda „extrakta" af við- komandi lífverum án þess að nokkrar lifandi frumur séu til staðar. Sem dæmi um þetta má nefna myndun maltsykurs úr sterkju og vínanda úr sykri. Þetta leiddi til þess að byrjað var að einangra ensím úr ýmsum lífver- um. Jafnframt varð mönnum Ijóst, að einangruð ensím gætu verið til margra hluta nytsamleg ef nægileg þekking á eðli þeirra og eiginleikum væri fyrir hendi. Hér á eftir ætla ég að nefna nokkur dæmi um ensím, sem notuð eru í iðnaði hér á landi eða sem vitað er að hægt væri að nota. Einnig mun ég fjalla um nokkrar þær hugmyndir sem komið hafa fram bæði hérlendis og erlendis um notkunarmögu- leika ensíma í iðnaði og þá fyrst og fremst í fiskiðnaði. HEFÐBUNDIN NOTKUN ENSÍMA í IÐNAÐI Mjólkuriðnaður Ostagerð hefur verið stunduð í margar aldir. Munnmælasögur herma að tilviljun hafi ráðið því, að farið var að búa til osta úr mjólk. Vambir jórturdýra voru gjarnan notaðar sem ílát fyrir margskonar vökva og þar á meðal mjólk. Vambir ungra dýra, sem eingöngu hafa verið alin á mjólk, innihalda mikið af ensími, sem nefnist rennin, en lítið af öðrum próteinsundrandi ensímum. Renninið er mjög sérhæft ensím sem veldur takmörkuðu niður- broti á ákveðnum mjólkurpró- teinum þannig að þessi prótein verða ekki lengur vatnsleysanleg og falla því út úr mjólkinni. Með því að geyma mjólk f jórturdýra- vömb hleypur hún og myndar mysu og ysting. Ystingurinn hefur síðan verið meðhöndlaður á ýmsan hátt til þess að fá fram hinar margvíslegustu ostategund- ir. Síðar var farið að vinna rennin úr vömbum til þess að nota við ostagerð. Heimsframleiðslan á rennini er ekki nægileg til þess að anna allri ostagerð og er nú farið að nota ensím af öðrum uppruna við ostaframleiðslu. Ekki i hafa seó1 ennþá fundist nein ensim ^ geta komið fullkomlega í stao^, fyrir rennin og þó að það kom^ flestum tilfellum ekki að 5 verður enn að nota „ekta" ren11 í vissar ostategundir. r í hrámjólk eru margskoo ensím og gegna sum þeirra V hlutverki að verja hana ger.‘ skemmdum. Þessa rotvarnarel inleika mjólkurinnar má aL ^ verulega með utanaðkoma11.^ ensíum og hefur sú aðferð v'e notuð t.d. í Svíþjóð. Kjötiðnaður stras Kjöt er gjarnan hengt upp eftir slátrun og látið hanga.^ nokkra daga áður en það er onn j frekar. Þetta er gert íþeim tilS3.^ að fá fram meyrnun svo að kj°. verði mýkra undir tönn. Pr0 ^ sundrandi ensím í kjötinu °B » bakteríum sem borist hafa 1 eftir slátrun taka að brjóta vöðvapróteinin og valda Þan , meyrnun. Til þess að bakter^ vöxturinn verði ekki svo mik' « kjötið skemmist þarf það hels hanga í kæliklefum. Þetta te langan tíma og er kostnaðarsa^ þannig að meyrnuninni erot með utanaðkomandi ensímuoj Frumstæðar þjóðir í hitabe löndunum nota niðursnei I .| papaya ávöxt eða papaya sa ‘ þess að gera kjöt meyrt. a Iðnaðarþjóðirnar nota nl' 362-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.