Ægir - 01.07.1985, Blaðsíða 14
greinilega þótt nótt væri. Minnst
var ferða norrænna manna á
Grænlandi um þessar slóðir, fyrst
í landaleit og síðan í leit að viði.
Hitafará Vestur-Grænlandi
Sjórannsóknirnar á Walther
Herwig fóru einkum fram á völd-
um stöðum, þar sem mælingarn-
ar hafa verið gerðar áður í lengri
eða skemmri tíma. Tilgangur
mælinganna er að kanna ástand
sjávar og breytingar þess í tíma.
Það er alkunna að veðurfar og
ástand sjávar hefur verið með
eindæmum erfitt á og við Vestur-
Grænland undanfarin ár. Þannig
var hitastig sjávar þar um 2°C
undir meðallagi veturna 1982-
1983 og 1983-1984 (Manfred
Stein, Erik Buch) og lofthiti var
hvorki meira né minna en 10-
12°C undir meðallagi þá sömu
vetur. Meðalhiti í janúar og
febrúar 1983 í Nuuk mældist
þannig vera -20 °C en í meðalár-
ferði 1931-1960 var lofthiti -8°C
(7. mynd). Reyndar hafa allir
mánuðir ársins síðan í ársbyrjun
1982 og a.m.k. fram að október
1984, verið undir meðallagi í
lofthita í Nuuk. Þessu valda bæði
óvenju kaldir hafstraumar og
mikill kuldapollur í lofthjúpnum
yfir Grænlandi.
Það er augljóst, að slíkt ástand
hefur sín áhrif í landi eins og
Grænlandi sem þegar er fyrir
handan mörk hins byggilega
heims að mati Evrópumanna,
þótt Inuitar hafi löngum áður
afsannað þá kenningu, en það er
önnur saga.
Mælingarnar á Walther Hervig
í vetur lofuðu heldur ekki góðu
um framhaldið, og sömu sögu var
að segja um slóðina við Labra-
dor. Sjávarhiti á þessum slóðum
s.l. haust var 1-2°C undir meðal-
lagi, þ.e.a.s. kaldur pólsjór var
ríkjandi og lítið fór fyrir hlýjum
4. mynd. Tæki sem skráir hita og seltu á móti dýpi, eða svonefnd„CTD-s°nu
„ Walther Herwig".
80° 80° 70°
40° W 30°W 20°W 10°W 0°
5. mynd. Leið geislavirkra úrgangsefna frá Sellafield á Englandi með
norður í höf, ásamt upplýsingum um hlutfallslegan styrkleika (1-1000) og
lengd (ár) og vegalengd (km) reksins (8).
370-ÆGIR