Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1985, Side 12

Ægir - 01.07.1985, Side 12
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur: Sjórannsóknir í kjölfar Eiríks og Leifs við Grænland og í Labradorhafi í október og nóvember 1984 Inngangur Þýsku hafrannsóknaskipin Walther Herwig og Anton Dohrn voru í október og nóvember 1984 við rannsóknir í hafinu við Grænland, eða í Grænlandshafi og Labradorhafi (1. mynd). Á Anton Dohrn fóru fram fiskirann- sóknir, en sjórannsóknir á Walt- her Herwig. Höfundi þessa pistils var boðin þátttaka í leiðangrinum á Walther Herwig til að vinna við athuganir á ástandi sjávar við Austur-Grænland og í Labrador- hafi. Einnig var þar danskur haf- fræðingur, Erik Buch frá Græn- lensku hafrannsóknastofnuninni í Kaupmannahöfn og Nuuk eða Godthaab. Hann hefurunniðsér- staklega að athugunum við Vestur-Grænland (1). Leiðang- ursstjóri á Walther Herwig var Manfred Stein frá Hafrannsókna- stofnuninni í Hamborg. Loka- verkefni hanstil prófs við Háskól- ann í Kiel 1973 (2,3) fjallaði um strauma og sjógerðir í Grænlands- hafi. Efnivið í verkefnið safnaði hann m.a. í leiðangri á rann- sóknaskipinu Bjarna Sæmunds- syni í ágúst 1971 með höfundi þessa pistils, en báðir eru nem- endur sama kennara í Kiel, próf. Gunther Dietrich, sem lést 1972. Aðrir þátttakendur frá Þýskalandi voru fjórir, Peter Kanje og Franz Molter, rannsóknamenn og Dag- mar Thiele og Anja Skibowski, stúdentar í sjávarlíffræði (2. mynd). Áhöfnin á Walther Herwig taldi 40 manns, þar á meðal voru læknir og veður- fræðingur, en skipið er um 2200 lestir að stærð (3. mynd). Skip- stjóri var Edwin Littkemann frá Bremerhaven. Ekki er því að leyna, að áhugi Þjóðverja á slóðunum við Græn- land tengist ríkisstyrktum fisk- veiðum og úrsögn Grænlendinga úr Efnahagsbandalagi Evrópu. Þjóðverjar hyggja á áfrarnh3 andi veiðar við Grænland 0 reyna að tryggja sér gott & , komulag við Grænlending3 þessum efnum. Rannsóknasvæðib °g gagnasöfnun Sjórannsóknir fóru fram a^ ^ Dohrnbanka við Austur-Gr^T land og þaðan suður fyrir HVl1 rannsóknaskipinu „ Walther Herwig" í október og nóvember 1984. Heitir straumar--------------» Kaldir straumar -------------» Djúp- og botnstraumar .............-» Sjórannsóknir --------------* 368-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.