Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1985, Page 30

Ægir - 01.07.1985, Page 30
Skólaslit Stýrimannaskólans í Reykjavík 1985 Stýrimannaskólanum í Reykja- vík var slitið í 94. skipti við hátíð- lega athöfn skólans hinn 25. maí s.l. Skólaslitin hófust með því að Anna Þóra Benediktsdóttir spilaði vals eftir Chopin. Minnst var sjómanna, fyrri nemenda og kennara skólans, sem hafa látist á skólaárinu. Sérstaklega var minnst skipverjanna á Bervík, sem fórust undan Rifi á Snæfells- nesi 27. mars s. I., Axels Thor- steinsson, fréttamanns og rithöf- undar, sem kenndi tungumál við Stýrimannaskólann fyrr á tíð og Markúsar B. Þorgeirssonar, mik- ils áhugamanns um björgun- armál og hönnuðar björgunar- nets, sem við hann er kennt, en Markús vargamall nemandi skól- ans og mikill velunnari. Guðjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri gerði grein fyrir starfi skólans á liðnu skólaári. Undirbúningsnámskeið fyrir þá nemendur sem fullnægðu ekki inntökuskilyrðum með 9. bekk grunnskóla eða samsvarandi námi var haldið frá 15. - 31. ágúst og sátu 10 nemendur nám- skeiðið, 8 stóðust próf inn í 1. bekk. Skólinn var settur 1. september og hófu þá 82 nemendur nám í fimm bekkjardeildum. Nokkur truflun varð á náminu vegna verkfalls opinberra starfsmanna á haustdögum og því mikið álag á vorönn. Tilskilin kennsla náðist með því að kenna á laugardögum og flytja haustpróf fram í janúar. Nokkrir nemendur hættu í kjölfarverkfallanna, sem Iauk30. október og höfðu þá tapast 19 kennsludagar. Undanþágur til skipstjórnar, sem hafa verið öllum hugsandi mönnum áhyggjuefni, taldi skólastjóri að stefndu í jákvæðari átt með bráðabirgðaákvæðum laga um atvinnuréttindi, sem samþykkt voru á haustþinginu 1984. Menntamálaráðuneytið býður nú upp á námskeið víða um landið fyrir þá skipstjórnarmenn, sem starfað hafa á undanþágu í a.m.k. tvö ár. Áformað er, að fyrra námskeiðið standi í 70 virka kennsludaga með prófum og á það að veita 80 rúmlesta réttindi, en framhaldsnámskeið fyrir þá sem þess óska er áætlað í 50 virka kennsludaga og veiti 200 rún1 lesta réttindi. Nemendur námskeiðannaeig3 að fá sömu kennslu í siglin?a fræði og sjómannafræðum nemendur í 1. bekk, en verða a taka inntökupróf í tungumáln11' og stærðfræði til að geta hald' áfram námi í 2. bekk Stýrimanna skólans. Þá hefur nýskipuð undanþágunefnd tekið mál þeS?! fastari tökum en verið hefur. h1 væri því einhver von um að koma þessum málum í eðlilegtogsania horf og er hjá öðrum starfsstétW11’ þjóðfélagsins, þar sem lögum er krafist sérmenntunar starfa. „Stýrimannaskólarnir, sem störfum að menntun $10 manna, og ekki síst skipstjórn2[ menn með fullgilt nám, og Þelí. nemendur, sem hér hafa ni' <eð Tveir hæstu nemendur á skipstjórnarprófi 2. stigs. Nordlendingarnir Jens Kristin^ Kristinsson til vinstri ogAlbert Gunnlaugsson til hægri. 386-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.