Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1987, Side 23

Ægir - 01.01.1987, Side 23
Litli karfi (Sebastes viviparus) Svartur blettur á tálknloki * Allir kinnbeinagaddar snúa aftur Áberandi gaddur neðan úr neðra skolti Gaddur neðan úr skolti aðjafnaði lítill Djúpkarfi (Sebastes mentella) Augu áberandi stór Kinnbeinagaddar áberandi og oft beygðir aðeins út í endann Neðsti gaddurinn veit oft aðeins fram Karfi (Sebastes marinus) Gaddar heldur minni en á djúpkarfa. Neðsti gaddurinn oft lítið áberandi Nokkur áberandi einkenni karfategunda. kemur í aflann því hann er heldur óhrjálegur á að líta. Hann er ^ðgur, mikið af honum með sníkjudýrum, með kýli eða hrúður eftir sníkjudýr og liturinn 0,1 óhreinn iðulega með rauða °g/eða svarta bletti á roði. En nú skulum við líta aðeins ^ánar á okkar aðal karfategundir, karfa og djúpkarfa. Líffrædi karfans Líffræði karfans er svo sérstæð, að varla er hægt að láta hjá líða 3ð minnast örlítið á hana. Fyrir pað fyrsta hefur karfinn — og hér e[ átt við allar tegundirnar - þá sérstöðu meðal íslenskra bein- 'ska, að hann fæðir lifandi afkvæmi. Ég nota því meðvitað orðið goten ekki hrygningu þegar ég tala um karfa. Þetta, aðfæða lifandi afkvæmi, er afar sjaldgæft meðal beinfiska í sjó. En ekki nóg með það heldur þroskast svil og gota á mismun- andi tíma. Þannig eru hængarnir kynþroska á haustin og fyrri hluta vetrar, en hrygnurnar verða ekki kynþroska fyrr en í febrúar-mars að vetrinum. Eðlun á sér stað, þegar hængar eru kynþroska, þ.e. á haustin, en sæðið geymist í got- unni, uns eggin eru þroskuð þ.e. um miðjan vetur og fyrst þá frjóvgast eggin. Þetta er svo ein- stætt, að þess finnast varla dæmi hjá hryggdýrum nema hjá fáum fisktegundum í Kyrrahafi náskyld- um karfa. Sem sagt, hrygnurnar ganga með, á meðan eggin klekjast út í gotunni og gjóta svo á vorin, aðallega í apríl-maí. Þegar kemur að goti er hegðun karfans gagn- stæð hegðun helstu nytjafiska okkar: í stað þess að safnast saman á bönkunum til hrygning- ar, heldur kart'inn til hafs til þess að gjóta. Hins vegar þurfa hæng- arnir ekki að taka þátt í gotgöng- unum, því þeir hafa lokið hlut- verki sínu: Það eru aðeins hrygn- urnar, sem ganga til hafs, en hængarnir verða eftir á köntun- um. Að áliðnum vetri og á vorin má oft sjá þess merki hér SV- lands, því afli í einstökum togum er oft yfirgnæfandi aðeins annað kynið. Að loknu goti SV í hafi leita hrygnurnar aftur upp í kantana í æti. Seiðin lenda í straumkerfi Crænlandshafs og berast N-eftir. Þarsem gotiðferfram svo langttil hafs, berst lítið af seiðunum upp til landsins. Megnið af þeim rekur til A-Grænlands en hluti berst með straumum norður og austur fyrir land. Seiðin leita síðan botns á A- grænlenska landgrunninu, en sum rekur jafnvel fyrir Hvarf. Landgrunnið við A-Grænland er þannig mikilvægasta uppeldis- svæðið fyrir karfastofna okkar. Þótt tímgunarlíffræði karfans sé einstök, þá hefur karfinn einnig sérstöðu á öðrum sviðum meðal nytjastofna okkar. Þannig verður hann fiska elstur og vex hægt. Hann kemur ekki að marki í veiði fyrren 11-12 áraog verður ekki kynþroska fyrr en um 16 ára. Aflinn byggist að miklu leyti á 15- 25 ára fiski, mest 16-22 ára, en mun fleiri aldursflokkar eru í afl- anum. Ekki er vitað með vissu hve gamall karfinn getur orðið, því nær ógerningur er að aldurs- greina elstu fiskana, en aldur ÆGIR - 15

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.