Ægir - 01.01.1987, Síða 26
spurning, hve mikið máog/eða er
æskilegt að veiða af honum?
Þetta er spurning sem erfitt er að
svara í dag.
Hér áður fyrr er möskvi var
mun minni í vörpum en nú er
leyfilegt, veiddist jafnan allmikið
af gulllaxi við karfaveiðar. Eftirað
möskvinn var stækkaður, kemur
ekki nema lítið eitt af honum með
í vörpuna, enda gulllaxinn
þannig vaxinn —sívalur og heldur
mjósleginn - að hann smýgur
möskva vel, en hreistrið á honum
er mjög stórt og laust, svo það eru
mikil líkindi fyrir því að hann
afhreistrist mjög við það að
smjúga möskva og drepist. í
mínum huga leikur enginn vafi á
því, að hér á árum áður var mjög
mikið um gulllax við landið. Það
var algengt að moka út 1-3
tonnum afgulllaxi íhverju karfa-
hali á vissum stöðum. Sókn í
karfa hefur aukist mjög í seinni
tíð. Áður fyrr voru karfaveiðar
stundaðar aðeins að sumarlagi.
Nú er sótt í karfann allt árið,
meira eða minna. Það er því við-
búið að mikið sé búið að drepa af
gulllaxi, þótt hann hafi ekki verið
hirtur. Það er því lítið vitað um
ástand stofnsins, og því alls ekki
víst, hvort hér sé um alfarið
ónýttan stofn að ræða í þessum
skilningi. Ég leyfi méraðefast um
það. Hinsvegareröruggtaðtölu-
vert er enn til af gulllaxi og sjálf-
sagt að nýta hann. Þar sem okkur
hefur ekki verið gefið tækifæri til
að gera þær forkannanir sem að
haldi mættu koma til að geta
gefið haldbærar vísbendingar
um, hvers sé af stofninum að
vænta, verða veiðar að skera út
umþað. Entilþessað nýtagulllax
þarf allt aðra möskvastærð í
vörpur en nú tíðkast. Ég gæti
hugsað mér að 60-90 mm möskvi
væri hentugur. Ef stunda á sér-
stakar gulllaxveiðar, þyrfti sér-
staklega hannaða vörpu með háu
opi, því gulllax erað jafnaði mjög
laus við botn og flotvarpa kæmi
vel til greina á vissum tímum
a.m.k. Norðmenn nota gjarnan
til þessara veiða 200-350 tonna
skip, sérstaklega hannaða botn-
vörpu með 40 mm möskvastærð,
sem er óþarflega smár möskvi,
því við myndum ekki sækjast eftir
smáfiskinum.
Nú virðist vera mikill áhugi á
að nýta gulllaxinn. í framhaldi af
því veitti sjávarútvegsráðuneytið
heimild til tilraunaveiða í júní til
ágústá liðnu sumri. Því miðurvar
ekki staðið að þessari tilraun sem
skyldi. í reynd voru tilraunir að-
eins gerðar í örfá skipti, en skipið
snéri sér alfarið að karfaveiðum
og var svo til á sama stað mest
allan tímann. En veiðieftirlits-
maður var um borð, sem tryggði
sýnatöku úr afla og skráði ýmsar
upplýsingar.
Þótt úrvinnslu gagnanna sé
ekki að fullu lokið, má þó fá
ýmsar nytsamar upplýsingar, en
slík tilraunaveiði hefði átt að geta
gefið miklu haldbetri vitneskju en
raun ber vitni.
Gulllaxinn þarna í Skerjadjúpi,
en þar veiddi skipið mestallan
tímann, var yfirleitt vænn, þótt
lengdardreifing hafi verið allmik-
il. Meðallengd á gulllaxi á svæð-
inu reyndist 41,4 cm. Þegar
fiskað vará meira en 220 fm. dýpi
varhúnmeiri, mesttæpir43 cm.,
en minni þegar fiskað var á
grynnra en þetta. Er þetta í sam-
ræmi við það sem við höfum
fundið víða annars staðar, þótt
stærðardreifing eftir dýpi sé ekki
eins skörp í Skerjadjúpi og t.d.
hér í Vesturkantinum.
Athugun á kynþroska leiddi í
Ijós, að yfirgnæfandi meirihluti
gulllaxins hafði nýlega hrygnt og
enn var hluti hans hrygnandi.
Fáein tog utan Skerjadjúps gáfu
ekki tilefni til mikilla bollalegg-
inga umfram það sem áður var
vitað. Aðeins skal þess getið hér
að á Eldeyjarbanka var hann
smár, en mjög stór í Selvogsbanka-
kantinum og á Síðu- og Öræfa-
grunnum.
En hvað um aflann, hve mikið
veiddist — og hve mikið er hægt
að veiða af honum? Þessi tilrauna-
veiði gaf ekki svör við því og
minni en efni stóðu til, ef rétt
hefði verið að staðið. í fyrsta
túrnum varað hluta sóst eftirgull-
laxi. Af tæpum 38 tonnum af
fiski, sem landað var eftir túrinn,
voru tæp 20 tonn gulllax og rúm
17 tonn karfi, m.ö.o. gulllax yfir
50% aflans. Það gefur vísbend-
ingu um að unnt sé að haga
veiðum þannig að gulllax sé
meirihluti afla.
Það yrði of langt mál að fara út
í einstök atriði, sem lesa má úr
gögnum þessarar tilraunar. Hér
skal það þótekiðfram, aðísumum
togunum fékkst nær hreinn gull-
lax og besti árangurinn gaf 1,5
tonn á togtíma. Annars var yfir-
leitt um og yfir 90% aflans karfi
og gulllax, þar af 'A til Vi gulllax.
Ef við höldum okkur við Skerja-
djúpið, þá reyndist meðalafli af
gulllaxi á togtíma um 270 kg í
rúmlega 30 togum en 320 kg af
karfa. í flestum þessara toga var
ekki reynt sérstaklega fyrir
gulllax. Engu að síður er hér um
umtalsverða veiðimöguleika að
ræða. Gefum okkur að slíkt skip
stundaði jöfnum höndum karfa-
og gulllaxveiði. Ef við gefum
okkur að togað sé í 18 tíma á sól-
arhring gæfi það um 25 tonn eftir
5 daga veiði. Vissulega mætti fá
mun meiri afla, ef veiðum væri
sérstaklega beint að gulllaxi.
Á þessari stundu erekki nokkur
leið að spá í, hve mikla veiði
stofninn þolir. Reynsla annars
staðar frá sýnir, að óheftar veiðar
eru fljótar að fiska stofninn niður
í lægð. Norðmenn hafa kosið að
setja hámarks aflamörk á þennan
18 -ÆGIR