Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 40

Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 40
hafði tiltölulega stöðugt gildi. Skreiðarverðlagið sem sagt er frá í fyrri grein, á 14du og 15du öld- inni, fyrst 8 vættir (320) fiskar í kúgildi, síðan 6 vættir (240 fiska) og komið í 31/2 vætt (140 fiska) móti kúgildi, þegar hér hefst sagan á öðrum tug 15du aldar, og það verðlag hélzt fram yfir miðja 15du öldina, ef ekki út öldina. Þessi verðþróun var vitaskuld afleiðing af markaðsverði á skreiðarmörkuðum í Englandi og Norður-Evrópu. Erfiðara er að gera sér grein fyrir markaðsverði í Englandi, en svo segja fræði- menn (Gísli Gunnarsson) að þar hafi gilt á 14du öld 4 vættir korns móti skreiðarvætt. En markaðssveiflur hafa ekki allar komið fram í verðlagi skreiðar reiknað í kúgildinu hér- lendis. Sjálfsagt mörg sveiflan alveg farið fram hjá okkur. Bæði korn-ogskreiðarmarkað- urinn var bundinn miklum sveifl- um. Þjóðirnar lágu í styrjöldum og allskyns pólitískum hagsmuna- átökum, og sókn í fisk var sveiflu- kennd t.d. á íslandsmið, fjöldi skipa annað árið, en sárafátt hitt árið, og markaðssvæði lokuðust og opnuðust eftir því sem stóð í ból kónga og verzlunarsambanda þessara umbrotaára í norðan- verðri Evrópu. í Sailing trawlers er þrívegis getið skreiðarverðs á 16du öld- inni, og þá í peningum. Árið 1538 er skreiðarverð sagt vera 100 skreiðarþorskar á 34s. 8d. eða lestarverð (1200 fiska) £20. 4s. Árið 1580 var lestarverð á skreið hinsvegar ekki nema £12, en árið 1600 var skreiðar- lestin aftur komin í £20. Þá er og einu sinni í Sailing trawlers getið verðs á löngu, og freistast maður til að halda það misritað, það er sagt vera 90s. hundraðið 1538, eða meira en 2Vi sinnum hærra en hundrað af þorski sama ár. Ef um 1 .fl. skreið var að ræða, 18 tommu fisk, þá átti skreiðar- þorskur að leggja sig á eitt kíló og þau 25 kg sem jamesverjar keyptu þá að vera eins og 25 skreiðarþorskar, og þetta verð á skreiðarþorskum £1. 6s. 6d., svarar þá hvorki meira né minna en til £63. 12s. verðs á skreiðar- lest, og væri þá meira en þrefalt hærra en ofannefnt gangverð á 16du öldinni þegar það var hæst samkvæmt ofansögðu £20 lestin. Þetta getur sem sé ekki hafa verið skreið, jafnvel þótt þeir hefðu keypt hann á markaði í London, en sumt af varningi þeirra var keypt frá London. Víkur þá sögunni aftur að kosti þeirraJamesverja, ogþáostinum. Það voru ekki neinar smáræðis- birgðir, sem þeir tóku með sér af osti, enda geymdist hann vel. Hérlendis áttu stórbændur og biskupsstólarnir oft fullar skemmur af osti. Þeir af James hafa tekið með sér í „hina löngu sjóferð", eins og íslandsferð var kölluð: „wey and haulfofcheys," og það hlýtur að merkja 2/2 tonn af osti. Þá er komið að þeim birgðunum, sem ætlaðar voru bæði til að létta skipshöfninni lífið, og eins íslenzkum höfðingj- um. Þeir tóku með sér 44 „butts" af bjór, en það er hvorki meira né minna en 24948 lítrar. Þótt á reikningnum séu kaupin tilgreind í „butt," sem var á/na, sem tók 568 lítra, þá hafa þeir eflaust skipt þessu í tunnur (barrels) og kvartel (bushels) í flutningi og sölu. Hannes Pálsson, hirðstjóri 1423-25 lét mikið af bjórdrykkju og víndrykkju íslenzkra höfð- ingja, segir þá drekka frá sér alla döngun og löngun til að berjast við Englendinga fyrir sinn danska kóng. Því dugleysi hefur ekki aðeins valdið víndrykkjan. íslendingar vildu ensku kaupskipin hingað, það var allt annað líf fyrir þjóð- ina, að eiga kost á þessari verzlun, hjá hinu aðeigaalla sína verzlun undir Norðmönnum og Dönum. Ekki var bjórinn dýr í innkaup- um, 3 pottar á 1 pence. Þeir gleymdu heldur ekki að taka með víndropa fyrir íslendinga að væta með kverkarnar. Vínið keyptu þeir í enn stærri ámum en bjórinn, eða „tuns" en þær ámur tóku 252 gallow eða 1134 lítra og 32 -ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.