Ægir - 01.01.1987, Síða 62
Framhald af bls. 50
4.
Flatfiskur(skarkoli, þykkvalúra, langlúra, lúðaoggrálúða)er
flokkaður í 3 gæðaflokka til manneldis.
1. flokkur.
Fiskur, sem er óaðfinnanlegt hráefni til hvaða verkunar sem
er. Óaðfinnanlegt hráefni erfiskur, semerferskur, meðeðli-
lega lykt, blæfallegur, með stinna og ósprungna vöðva, rétt
slægður, rétt blóðgaður, hreinn og kældur í skipinu.
Fiskurinn má ekki vera með sjáanlegum hrognum og vera
gróinn eftir hrygningu, þó mega vera merkjanleg hrogn í
þykkvalúru og langlúru. Hann máekki hafa tekið litaföðrum
fiski. Sandur eða óhreindindi mega ekki vera í tálknum.
2. flokkur:
Fiskur, sem er ekki hæfur í 1. flokk vegna minniháttar galla.
Gæði þau sömu og í 1. flokki nema:
a) Fiskurinn má vera lítilsháttar marinn eða blóð-
hlaupinn, þó ekki meira en 9 fersentimetra samanlagt mar á
fiskinum.
b) Fiskurinn má vera með smávægilega meðferðargalla, svo
sem ranga slægingu, skorið niður í hvíta þunnildið, blóðlitað
kúttunarsár, smá goggstungur eða lit vegna snertingar við
annan fisk.
c) Fiskur með byrjunarmyndun hrogna og hálfgróinn eftir
hrygningu.
d) Fiskur, sem skip koma með að landi óísaðan, en er aðöðru
leyti 1. flokkur, fellur í þennan flokk.
3. flokkur.
Fiskur, sem ekki er hæfur í annan flokk vegna meiriháttar
galla. Fiskurinn skal vera efnislega óskemmdur, laus við
greinilega súr-, ýldu- eða slagvatnslyktj ókraminn, órifinn,
ekki með samfelldu blóðmari né horfiskur, sem er orðinn
kvapkenndur. Fiskur, sem skip koma með að landi óísaðan,
en er að öðru leyti 2. flokkur, fellur í þennan flokk.
Urgangsfiskur.
Fiskur, sem ekki flokkast undir framantalda flokka, svo sem
kvapkenndur horfiskur, mikið blóðmarinn, rifinn eða
kraminn, fiskur með greinanlegri súr-, ýldu-'eða slagvatns-
lykt og fiskur, sem skip koma með að landi óísaðan, en er að
öðru leyti 3. flokkur, fellur í þennan flokk.
5.
Hrogn eru flokkuð í 2 gæðaflokka til manneldis.
1. flokkur.
Hrogn, semeru óaðfinnanlegthráefni til hvaða verkunarsem
er. Óaðfinnanlegt hráefni eru hrogn, fersk, hrein, blæfalleg
með eðlilega lykt, ósprungin, ekki blóðhlaupin, ekki með
gall- eða marblettum, ekki komin að goti (ekki farin að sjást
í þeim augu). Þó má vera örsmátt gat á annarri skálm.
2. flokkur.
Hrogn, sem ekki eru hæf í 1. flokk, vegna galla. Þau eiga að
vera fersk, hrein, laus við gallbletti og lítið blóðhlaupin.
Hrognin mega vera farin að taka breytingum vegna hrygn-
ingar eða sem næst hálfhrygnd.
Úrgangur:
Hrogn, sem ekki flokkast undirframantalda flokka vegna súr-,
ýldu- eða slagvatnslyktar, óhreininda, blóðhlaups eða eru
meira en hálfhrygnd.
ÞVÍ EKKI ISLENSKA ISVEL?
★
★
★
★
★
★
★
★
★
oAo
□
a
ísvél er framleiðir betri ís.
fsvél, íslensk hug- og handarsmíð.
ísvél sem er ódýrari.
ísvél sem fylgja betri greiðslukjör.
ísvél sem komin er á 10 ára reynsla.
ísvél sem hefur 1. flokks þjónustu.
ísvél sem kemst nánast alls staðar fyrir.
ísvél sem er hafin útflutningur á.
ísmark ísvéþ framleiðsluafköst
0.5-100 tonn á dag, hvort sem er úr
fersku vatni eða sjó.
ISVÉLAR HF
Höfðabakka 3 Sími 91-83582
P.O. Box 4305
Reykjavík.