Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1989, Blaðsíða 34

Ægir - 01.03.1989, Blaðsíða 34
142 ÆGIR 3/89 Hannes Magnússon: Notkun hita til eyðingar á salmonellu í mjölpokum Inngangur almonella sýklar finnast víða í umhverfi okkar. Þessir sýklar geta lifað í innyflum manna og dýra með heitt blóð og er saur því aðalsmitleið þeirra. Margar tegundir eru til (yfir 2000) og valda þær misalvar- legum sýkingum. Þekktasta teg- undin nefnist Salmonella typhi en hún veldur taugaveiki. Sýkingar af völdum salmonellu eru orðnar það algengar hér á landi að flestir þekkja nokkuð til þessa vágests. Á hverju ári veikjast tugir manna hér á landi af völdum salmonellu. Víðast hvar í heim- inum er háð barátta við að halda þessum sýkingum í skefjum en hluti hennar er að hafa eftirlit með því að einungis sé notað ómengað fóður fyrir sláturdýr. Menn eru sammála um að smitað fóður eigi stóran þátt í salmonella sýkingum í mönnum og dýrum á undanförn- um áratugum. Salmonella sýklar geta borist inn í fiskmjölsverksmiðjur eftir nokkrum leiðum. Talið er að ein aðalsmitleið þeirra sé með máva- driti en sýnt hefur verið fram á að allstór hluti máva hér á landi er smitaður af salmonellu. Hitun í sjóðurum og þurrkurum er talin nægjanleg til (aess að drepa þessa sýkla. Finnist þeir í mjöli eru því yfirgnæfandi líkur á að smitunin hafi átt sér stað eftir þurrkun mjölsins. Mjög er því mikilvægt að þeir fletir sem mjölið kemst í snertingu við eftir þurrkun séu ósmitaðir. Þannigert.d. nauðsyn- legt að endurkeyra allt mjöl sem lendir á gólfi þurrvinnslusvæðis, en salmonella hefur oft verið ein- angruð úr mjölleifum af gólfum verksmiðja. Ekki er síður nauðsyn- legt að tryggja að notaðir séu ósmitaðir mjölpokar undir mjöl- birgðir verksmiðjanna. Á undanförnum árum hefur notkun marglaga pappírspoka undir mjöl farið minnkandi en notkun mjölpoka hefur hins vegar aukist til muna. Þessir pokar eru ofnir úr polypropylene efni og taka þeir um 1,5 tonp af mjöli. Notkun þeirra hefur leitt til mikillar hagræðingar við geymslu og lestun á mjöli. Hingað til hafa ýmis þvotta- og gerileyðandi efni verið notuð við þrif á mjölpokum. Sum þessara efni eru nokkuð dýr og því vakn- aði sú hugmynd hvort nægjanlegt væri að notast eingöngu við heitt vatn til eyðingar á salmonellu í mjölpokum. Hér verður lýst til- raun þar sem þetta var kannað. Framkvæmd Hluti af mjölpoka var fenginn frá einni fiskmjölsverksmiðju. Mjöl- pokaefnið var klippt niður í 5 búta og var hver bútur 100 crrr (10x10 cm). Bútarnir voru síðan settir í 2.5 kg af fiskmjöli, sem áður hafði verið mengað með Salmonella schwarzengrund. Alls voru settir ° ml af fullvaxinni rækt (ca 109/mD 1 nutrient broth saman við rnjöliö- Því mun láta nærri að 2,4 milljón|r salmonella-gerla hafi verið 1 hverju grammi mjöls eftir blöndui1 sem er vægast sagt geysi le§ mengun. Bútarnir voru hafðir 1 menguðu mjölinu í 30 m|ri; Mjölið var hrært reglulega ‘1 þessum tíma. Bútarnir voru nú teknir úr mjo1' inu, laust mjöl hrist af þeim fjórir þeirra (alls 400 cm2) settir ' 70°C (±1°C) heitt vatnsbað með sírennsli. ílátið sem notað vart0 u.þ.b. 7 I. Bútarnirvoru hafðirv' 70°C í '/2, 2, 5 og 10 mín. og sett'/ í ræktun (Lactose broth) e' þennan tíma. Firnmti búturinn v‘ir settur beint í ræktun án hit°n‘ir (kontról). Sýnin fimm voru síð3'1 ræktuð á hefðbundinn hátt. Þe5^ tilraun var endurtekin á sama h‘1 nema nú var notað 65°C ne vatn. ^ Einnig var gerð lítilleg könnun því hvort hitun á pokaefninu he^ óæskileg áhrif á efnið sjálft l- ' hvort það hlypi. Til þess að kanm þetta atriði voru klipptir tveir 4 ^ cm2 bútar (20x20 cm) og \>e' hafðir í 70° heitu vatni í '/2 °S mín. Þeir voru síðan þurrkaðir' 55°C í 2 klst. Eftir þurrkun bútarnir mældir og skoðaðir vorf Niburstöbur og ályktanir Hitun á pokaefninu við 70°C 1 ýz
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.