Ægir - 01.01.1990, Síða 10
2
ÆGIR
1/90
Dr. Þór Jakobsson:
„Landsins forni..."
Hafískönnun við Island
ísland dregur nafn sitt af hafís.
Fyrstu landkönnuðum frá Noregi
hefur þótt mikið til koma, er þeir
litu fjörð fullan af ís. Æ síðan hefur
hafísinn þótt forvitnilegur,
stundum skelfilegur, og ekki verið
langt undan ströndum landsins.
Oft er getið hafíss í annálum
landsmanna í aldanna rás.
Og enn þykir nauðsynlegt að
fylgjast með hafísnum með öllum
tiltækum ráðum. Allt fram á þessa
öld skunduðu menn á fjall til að
sjá betur á haf út, ef menn höfðu
grun um, að hafís nálgaðist.
Nú hafa menn betri ráð. Tækni
nútímans er beitt, fjarskiptum,
flugvélum, veðurtunglum og
tölvum. Framfarir eru örar.
Það er í verkahring hafísrann-
sóknadeildar Veðurstofu íslands
að fylgjast með hafísnum við
ísland. Það gerir hún vitanlega
með samvinnu við ótal aðila. Hjá
hafísrannsóknadeild, sem stund-
um er einfaldlega kölluð hafís-
deild, safnast upplýsingar um
hafís við ísland og þangað má
leita, ef menn á hinn bóginn þurfa
á upplýsingum um hafís að halda.
Verður nú í stuttu máli lýst
helstu verkefnum hafísrannsókna-
deildar Veðurstofu íslands.
Hafískönnun
Könnun á hafís við strendur
íslands og á íslandsmiðum fer
fram með ýmsum hætti.
a) í fyrsta lagi flýgur Landhelgis-
gæsla íslands yfir ísinn og kort-
leggur. Hafískönnun úr lofti er
mjög mikið stunduð í norðlægum
löndum.
Veðurstofa Kanada hefur viða-
mikla ískönnunardeild og tvær
stórar flugvélar, sem eru notaðar
við könnun á hinu mikla hafís-
flæmi milli kanadísku eyjanna og
norðan þeirra. Einnig er feikimikill
hafís á veturna milli Kanada og
Grænlands og allt suður fyrir
Nýfundnaland og í St.Laurence-
flóa. Allt þetta hafsvæði þarf að
kanna til að vita, hvar og hvenær
megi brjótast í gegn á ísbrjótum
eða hvort tímabært sé að hefja
sumaráætlanir flutningaskipa.
Grænlenska hafísþjónustan. er
rekin af Veðurstofu Danmerkur og
eru miðstöðvar sjálfrar könnun-
arinnar í Narssarssuaq á Suður-
Grænlandi. Það er raunar ein fu11-
komnasta hafískönnun í heimi.
Flugvél þeirra er á lofti svo að
segja daglega. Þótt lítil sé, er hún
vel búin tækjum og aðstöðu fyrir
ískönnuð að teikna hafísinn um
leið og flogið er yfir.
Sovétmenn kanna sinn mikla
hafís norður af Rússlandi og
Islunga vid Straumnes.