Ægir - 01.01.1990, Blaðsíða 37
1/90
ÆGIR
29
13. gr.
Ráðuneytið getur sett nánari
reglur um framkvæmd varðandi
úthlutun botnfiskveiðileyfa.
14. gr.
Ráðherra er heimilt að takmarka
framsalsheimildir skipa, sem sér-
stök leyfi fátil veiða á flatfisk með
dragnót.
15. gr.
Brot á reglugerð þessari varða
viðurlögum samkvæmt ákvæðum
laga nr. 3 8. janúar 1988, um
stjórn fiskveiða 1988-1990. Með
mál út af brotum skal farið að
hætti opinberra mála.
16. gr.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 3, 8
janúar 1988 um stjórn fiskveiða
1988-1990, til þess að öðlast gildi
1- janúar 1990 og birtist til eftir-
breytni öllum þeim sem hlut eiga
að máli.
Sjá varútvegsráðuneytið,
19. desember 1989.
Halldór Asgrímsson.
Arni Kolbeinsson.
reglugerð
um veiðar á úthafsrækju 1990
1. gr.
Reglugerð þessi tekur til veiða á
rækju, sem veidd er utan viðmið-
unarlínu, sbr. lög nr. 81/1976, að
undanskildu svæði við Eldey, sem
aö sunnan markast af línu, sem
dregin er réttvísandi 245° frá
Reykjanesaukavita, að vestan
markast svæðið af 23°40 V og að
norðan af 64°05 N.
Rækjuveiðar á Dohrnbanka
vestan 26°V skulu undanþegnar
ákvæðum reglugerðar þessarar
samkvæmt nánari reglum settum í
'eyfisbréfi.
Ráðherra getur ennfremur
akveðið í leyfisbréfi að rækju-
veiðar á ákveðnum svæðum skuli
undanþegnar ákvæðum reglu-
gerðar þessarar með ákveðnum
skilyrðum.
2. gr.
Á árinu 1990 skulu leyfi til
úthafsrækjuveiða miðast við, að
heildarrækjuafli á svæði skv. 1.
mgr. 1. gr. fari ekki yfir 23 þúsund
lestir.
3. gr.
Eftirgreindir skipaflokkar eiga
kostá úthafsrækjuveiðileyfi 1990:
1. Loðnuskip. Skip, sem flokkuð
eru sem loðnuskip, á grund-
velli 2. gr. reglugerðar frá 19.
desember 1989, um stjórn
botnfiskveiða 1990.
2. Sérhæfð rækjuveiðiskip. Skip,
sem áttu kost á að verða sér-
hæfð rækjuveiðiskip á árinu
1989, sbr. 1.-3. mgr. 5. gr.
reglugerðar nr. 553 29. des-
ember 1988, um veiðar á
úthafsrækju 1989.
3. Önnur rækjuveiðiskip. Skip,
sem úthlutað var veiðirétt-
indum á grundvelli 5. mgr. 5.
gr. og 6. gr. reglugerðar nr.
553, 29. desember 1988, um
veiðar á úthafsrækju 1989.
4. gr.
Velja skal fyrir hvert loðnuskip,
sbr. 1. tl. 3. gr., á milli botnfisk-
veiði leyfis með aflamarki og
rækjuveiðileyfis með aflamarki.
Velji loðnuskip árið 1990
rækjuveiðileyfi skal því úthlutað
sama rækjuaflamarki og skipinu
var úthlutað á árinu 1989 og jafn-
fram 90 lestum af þorski.
5. gr.
Velja skal fyrir hvert sérhæft
rækjuveiðiskip, skv. 2. tl. 3. gr. á
milli veiðiréttinda skv. 2^1 mgr.
þessarar greinar og óskerts botn-
fiskveiðileyfis skv. 5. mgr. þess-
arar greinar.
Sérhæfðum rækjuveiðiskipum,
sbr. 2. tl. 3. gr., skal skipt í stærð-
arflokka og hverju skipi gefinn
kostur á rækjuaflamarki eftir stærð
sem hér segir:
1. Skip 500 brl. og stærri: 600 lestir
2. Skip 250 brl. og stærri
en minni en 500 brl: 500 lestir
3. Skip 200 brl. og stærri
en minni en 250 brl.: 400 lestir
4. Skip minni en 200 brl.: 300 lestir
Rækjuaflamark hvers rækju-
veiðiskips á árinu 1990 skal þó
aldrei vera lægra en rækjuafla-
mark sama skips árið 1989.
Sérhæfðum rækjuveiðiskipum,
sem velja rækjuveiðileyfi skv. 2.
og 3. mgr. þessarar greinar, skal
ennfremur úthlutað einum þriðja
hluta af botnfiskaflamarki þeirra
og gilda um það aflamark
almennar reglur. Botnfiskaflamark
þetta skal þó aldrei vera lægra en
165 lestir af þorski fyrir skip skv.
tl. 1. og 2. tl. og 85 lestir fyrir skip
skv. 3. og 4. tl. 2. mgr. þessarar
greinar.
Sérhæfðu rækjuveiðiskipi, sem
velur að halda fullum botnfisk-
veiðiheimildum árið 1990, skal
úthlutað sama rækjuaflamarki,
sem því hefði verið úthlutað árið
1989, hefði það valið að halda
fullum botnfiskveiðiheimildum
það ár.
6. gr.
Hverju rækjuveiðiskipi skv. 3.
tl. 3. gr. skal á árinu 1990 úthlut-
að rækjuveiðileyfi með sama afla-
marki og skipinu var úthlutað árið
1989.
7. gr.
Skylt er að koma með allan
rækjuafla að landi og vigta á lönd-
unarstað, sbr. reglugerð nr. 567,
28. nóvember, um vigtun sjávar-
afla.
8. gr.
Við ákvörðun stærðar skipa skv.
5. gr. skal miða við gildandi
mælingarbréf 31. desember 1987
frá Siglingamálastofnun ríkisins.
Komi skip í rekstur eftir 31. des-
ember 1987 skal miðað við fyrsta
útgefna mælingarbréf fyrir skipið.