Ægir - 01.01.1990, Blaðsíða 36
28
ÆGIR
1/90
sérveiðiheimilda, útgerðaflokkur
2, sem stærri er en 110 brl. eða
síldarbáti, útgerðarflokki 3, úthlut-
að aflahámarki samkvæmt þessari
grein, skal það taka til aflahá-
marks í þorski, karfa og grálúðu
eftir því sem við á: (Tafla að framan)
Varðandi útgerðarflokka 6 og 7
er heimilt að víkja frá ákvæðum
þessarar greinar um þorskaflahá-
mark og ennfremur ákvæðum 8.
gr. um sóknardagafjölda, sé það
talið nauðsynlegt vegna breytinga
í tekjum af sérveiðum.
Við línuveiðar í janúar, febrúar,
nóvember og desember reiknast
50% þorskaflans ekki til þorskafla-
hámarks.
Þorskur smærri en 50 cm og
karfi innan 500 gr telst ekki að
tveimur þriðju hlutum með í afla-
hámarki, enda fari fiskur undir
þessum lágmarksmörkum ekki yfir
10% af þorsk- eða karfaafla í
veiðiferð og t'yrir liggi staðfesting
frá matsmönnum eða vigtar-
mönnum um magn, skv. reglum
er ráðherra setur. Þetta gildir ekki
um afla, sem hausaður er um borð
í veiðiskipi. Allur afli, sem veiddur
er á handfæri, telst til aflahámarks.
Allan afla án tillits til stærðar
eða í hvaða veiðarfæri hann fæst,
sem fluttur er óunninn á erlendan
markað, skal reikna til aflahá-
marks með 15% álagi, sbr. þó 6.
mgr. hér að ofan.
8. gr.
í töflu hér á eftir er tilgreindur
fjöldi sóknardaga á einstökum
tímabilum samkvæmt flokkun
veiðiskipa í II. kafla:
Engar takmarkanir eru á fjölda
sóknardaga hjá skipum, sem línu-
veiðar stunda í janúar, febrúar,
nóvember og desember.
V. KAFLI
Ýmis ákvæði
9. gr.
Skylt er að hirða og koma með
að landi allan botnfisk af kvóta-
bundnum fisktegundum og nýtan-
legum fisktegundum, sem mark-
aður er fyrir. Sleppa skal þó fiski
undir lágmarksstærðum sem til-
greindar eru í 7. mgr. 3. gr. sem
fæst á handfæri.
10. gr.
Skipstjóra er skylt að halda fiski
um borð í veiðiskipum að-
greindum eftir tegundum. Enn-
fremur er honum skylt að láta
vigta hverja tegund sérstaklega á
löndunarstað, sbr. reglugerð nr.
567, 28. nóvember 1989, um
vigtun sjávarafla.
11. gr.
Útgerðum veiðiskipa, skips-
tjórnarmönnum og kaupendum er
skylt að senda sjávarútvegsráðu-
neytinu skriflegar upplýsingar um
afla og aflasamsetningu og um
úthald og sjósókn á eyðublöðum,
sem ráðuneytið leggur til. Vanskil
á skýrlum og röng skýrslugjöf
varða tafarlausri leyfissviptingu.
12. gr.
Við útreikning þorskígildis skal
miðað við eftirfarandi verðmæta-
hlutföll: Þorskur 1,00, ýsa 1,19,
ufsi 0,56, karfi 0,53 og grálúða
0,80.
Útgerðarflokkur 1, togarar.
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3
jan.-apr. maí-ág. sept.-des Samtals
85 65 80 230
Útgerðarflokkur 2, bátar án sérveiðiréttinda.
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3 Tímabil 4 Tímabil 5
jan.-feb. mars-apr. maí-ág. sept.-okt. nóv.-des. Samtals
35 40 55 35 25 190
Utgerðarflokkur 2, togbátar, sbr. 2. mgr. 2. gr.
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3 Tímabil 4
jan.-feb. mars-apr. maí.-ág. sept.-des Samtals
40 40 65 70 215
Útgerðarflokkur 3, síldarbátar.
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3 Tímabil 4
jan.-feb. mars-ág. maí.-okt. nóv.-des Samtals
35 40 55 15 145
Útgerðarflokkur 4, humarbátar.
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3 Tímabil 4
jan.-feb. mars-apr. maí-júní júlí-des. Samtals
35 40 10 55 140
Útgerðarflokkur 5, humar- og síldarbátar
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3 Tímabil 4
jan.-feb. mars-apr. maí-júní júlí-des. Samtals
35 40 10 35 120
Útgerðarflokkur 6, rækjubátar. Suður- og Vesturland
Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil 3
jan.-feb. mars-apr. sept.-des Samtals
25 40 45 110
Vestfirðir, Norðurland
Tímabil 1 Tímabil 2
jan.-maí júní-des. Samtals
45 65 110
Útgerðarflokkur 7, skelbátar
Tímabil 1 Tímabil 2
jan.-apr. maí-des. Samtals
40 40 80