Ægir - 01.01.1990, Blaðsíða 40
32
ÆGIR
1/90
NÝ
FISKISKIP
I þessu tölublaði Ægis birtast lýsingar af fjórum
fiskiskipum í stærðarfiokknum 15-50 rúmiestir, sem
öll bættust við flotann árið 1988, og eru lýsingar
þessar því frekar síðbúnar. Tvö þessara skipa eru inn-
flutt stálfiskiskip, en hin tvö eru innlendar nýsmíðar,
sem eiga það sammerkt að hafa verið lengi ísmíðum,
önnur úr áli en hin úr eik.
Arnar KE 260
í ágúst 1988 bættist við flotann innfluttur bátur,
Arnar KE 260. Báturinn sem bar nafnið Havdönn, er
hann kom til landsins, er smíðaður árið 1987 í
Noregi, hjá skipasmíðastöðinni Aage Syvertsen Mek.
Verksted, smíðanúmer 3. Eftir að báturinn kom til
landsins voru gerðar ákveðnar lagfæringar á honum,
m.a. innréttaðar íbúðir í hvalbak, vindubúnaður auk-
inn o. fl. í júlí á s. I. ári var skutur lengdur um 1.5 mog
komið þar fyrir andveltigeymum.
Arnar KE er í eigu Ragnars Ragnarssonar, Keflavík,
og er hann jafnframt skipstjóri á honum. Hann kemur
í stað Sæmundar HF 85 (638), 38 brl eikarskips,
smíðað á Akureyri árið 1949.
Almenn lýsing:
Bolur skipsins er smíðaður úr stáli en þiIfar úr áli,
og er það óflokkað. Eitt þilfar er stafna á milli, lok-
aður hvalbakur að framan og stýrishús aftast á hval-
baksþiIfari, hvorutveggja úr áli.
Undir aðalþilfari er skipinu skipt með þremur
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; þá vélarúm með
brennsluolíugeymum í síðum; fiskilest; og aftast
skutrými, þ.e. stýrisvélarrými ásamt netageymslu
með andveltigeymum aftast f skut.
í hvalbaksrými eru íbúðir, en aftan við það er tog-
þilfarið með toggálga aftantil. Bóma er í afturkanti
hvalbaksþilfars og aftast á þaki stýrishúss er ratsjár- og
Ijósamastur, jafnframt fyrir bómulyftingu.
Mesta lengd ........................ 16.45 m
Lengd milli lóðlína ................ 13.50 m
Breidd (mótuð) ...................... 5.57 m
Dýpt (mótuð) ........................ 3.34 m
Lestarrými ............................ 55 m3
Brennsluolíugeymar 6.0 m3
Ferskvatnsgeymir ..................... 2.0 m'
Andveltigeymar ....................... 3.0 m3
Brúttótonnatala 58 BI
Rúmlestatala 45 Brl’
Skipaskrárnúmer 1968
Mæling fyrir skutbreytingu
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er frá Scania, gerð DSI 14, átta
strokka fjórgengisvél með forþjöppu, sem skilar 252
KW við 1800 sn/mín. Við vélina er niðurfærslugír og
skiptiskrúfubúnaður frá Heimdal, gír af gerðinni RJ
43, niðurfærsla 4.95:1, og skrúfa 3ja blaða úr bronsi,
þvermál 1600 mm, snúningshraði 364 sn/mín.
Við aflúttaksbúnað framan á aðalvél eru þrjár fast-
tengdar vökvaþrýstidælur frá Hamworthy af gerð
2216 fyrir vindur og skilar hver þeirra 111 l/mín við
176 bar þrýsting og 1000 sn/mín. Þá knýr aðalvél 3.6
KW, 24 V jafnstraumsrafal.
Hjálparvél er frá Mase, eins strokka fjórgengisvél af
gerð Ruggerini, 9.3 KW við 3000 sn/mín. Við vélina
er rafall frá Mase, 7.0 KW, 24 V. Stýrisvél er frá
Tenfjord, gerð H 70, snúningsvægi 400 kpm.
Fyrir vélarúm er rafdrifinn blásari frá Transmotor.
Rafkerfi skipsins er 24 V jafnstraumur. Upphitun er
frá Pyro miðstöðvarkatli, olíukyntum. Fyrir neyslu-
vatn eru rafdrifnar dælur. Fyrir vélarúm er Halon
1301 slökkvikerfi.
íbúðir:
Fremst í hvalbak er svefnklefi með sex hvílum,
b.b.-megin þar fyrir aftan er eldhús með borðkrók og
aftast gangur. S.b.-megin aftan við svefnklefa er
stakkageymsla og salernisklefi með sturtu, en mið-
svæðis er vélarreisn. Fyrir matvæli er kæli- og frysti-
skápur.
Ibúðir eru einangraðar með 50 mm steinull og
klæddar með plasthúðuðum plötum.