Ægir - 01.01.1990, Blaðsíða 35
1/90
ÆGIR
27
IV. KAFLI
Sóknarmarksskip
4. gr.
Veiðileyfi með sóknarmarki er
veitt með því skilyrði, að sóknar-
dagar til botnfiskveiða fari ekki
fram úr tilgreindum fjölda á
ákveðnu tímabili sbr. 8. gr. ogafli
ekki yfir hámark skv. B lið 8. gr.
laga nr. 3/1988 og 7. gr. reglu-
gerðar þessarar.
5. gr.
Sóknarmark hefst þegar skip
heldur úr löndunar- eða heima-
höfn til veiða og lýkur þegar skip
kemur í höfn með veiðarfæri
innanborðs til löndunar afla, enda
haldi skipið ekki úr höfn til veiða
aftur fyrr en liðnar eru a.m.k. þrír
sólarhringar.
Sigli skip með eigin afla til
löndunar á erlendan markað telst
sá tími til sóknardaga, sem fer til
siglingar utan.
6. gr.
Utgerð eða skipstjóri sóknar-
marksskips skal tilkynna sjávarút-
vegsráduneytinu eigi síðar en 12
dögum eftir lok hvers mánaðar á
þar til gerðu eyðublaði, hvaða
daga viðkomandi skip hefur nýtt
til sóknar á tímabilinu. Ennfremur
er skylt að skila aflaskýrslum skv.
11. gr.
Heimilt er að stunda veiðar allt
að þrjá daga unifram úthlutaðan
sóknardagafjölda tímabils, enda
dragist jafnmargir dagar frá sókn-
ardagafjölda næsta tímabils á eftir.
Fari slík frávik fram úr þremur
dögum um einn eða tvo daga
reiknast þeir tvöfaldir til frádráttar
á næsta tímabil á eftir. Frávik
umfram fimm daga teljast brot á
reglum þessum.
Heimilt er með samþykki
ráðuneytisins að færa milli tíma-
bila allt að fjóra af hverjum fimm
sóknardögum, sem ekki hafa nýst
tH fiskveiða enda hafi skip orðið
að liggja í höfn a.m.k. fimmtán
daga vegna meiriháttar bilana.
Útgerð skal sækja skriflega til
ráðuneytisins um slíka yfirfærslu
daga milli tímabila. Umsókn skal
fylgja skrifleg greinargerð frá við-
gerðaraðila eða tryggingarfélagi
um viðgerðina og hversu langan
tíma hún tók. Ráðuneytið
úrskurðar um vafaatriði að feng-
inni umsögn samráðsnefndar. Að
öðru leyti er óheimilt að flytja
ónýtta sóknardaga eins tímabils til
annarra tímabila.
7. gr.
Sóknarmarksskipi er á árinu
1990 óheimilt að veiða meira
magn en tilgreint er í töflu í 3.
mgr. þessarar greinar eða sem
svarar aflahámarki þess sam-
kvæmt ákvæðum 8. gr. laga nr. 3,
8. janúar, um stjórn fiskveiða
1988-1990 og sem leiðir af rétti til
yfirfærslu milli ára.
Heimilt er að nýta þorsk- og
grálúðuaflahámark til veiða á
karfa sbr. 12. gr.
Aflahámark sóknarmarksskipa
er sem hér greinir fyrir hvern
stærðar-, útgerðar- og veiði-
svæðaflokk fiskiskipa. Miðað er
við slægðan þorsk og grálúðu með
haus. Karfaaflahámark er miðað
við óslægðan karfa með haus. Sé
togara, útgerðarflokkur 1, báti án
Útgerðarflokkur 1, togarar: Svæði 1 Svæði II
39 metrarog styttri: Þorskaflahámark 535 lestir 810 lestir
Lengri en 39 metrar Þorskaflahámark 940 lestir 1335 lestir
39 metrarog styttri: Karfaaflahámark 765 lestir 90 lestir
Lengri en 39 metrar: Karfaaflahámark 1550 lestir 550 lestir
39 metrarog styttri: Grálúðuaflahániark 100 lestir 125 lestir
Lengri en 39 metrar: Grálúðuaflahámark 350 lestir 400 lestir
Útgerðarflokkur 2, bátar án Þorskafla- Karfaafla- Grálúðuafla-
sérveiðiheimilda: hámark hámark hámark
Frá 10 brl. til og með 15 brl. : 110lestir
Stærri en 15 brl. til og með 20 brl.: 115 lestir
Stærri en 20 brl. til og með 25 brl.: 160 lestir
Stærri en 25 brl. til og nieð 30 brl.: 180 lestir
Stærri en 30 brl. til og með 40 brl.: 195 lestir
Stærri en 40 brl. til og með 50 brl.: 225 lestir
Stærri en 50 brl. til og með 90 brl.: 270 lestir
Stærri en 90 brl. til og með 110 brl.: 285 lestir
Stærri en 110 brl. til og með 200 brl.: 355 lestir
Stærri en 200 brl.: 400 lestir
Útgerðarflokkur 3, síldarbátar: 355 lestir
Útgerðarflokkur 4, humarbátar:
50 brl. og minni: 95 lestir
Stærri en 50 brl. til og með 90 brl.: 190 lestir
Stærri en 90 brl.: 205 lestir
Útgerðarflokkur 5, humar- og síldarbátar:
90 lestir
90 lestir
90 lestir
100 lestir
100 lestir
100 lestir
90 brl. og minni:
Stærri en 90 brl.:
Útgerðarflokkur 6, rækjubátar:
10 brl. til og með 20 brl.:
Stærri en 20 brl. til og með 50 brl.
Stærri en 50 brl.:
Útgerðarflokkur 7, skelbátar:
10 brl. til og með 20 brl.:
Stærri en 20 brl. til og með 50 brl.
Stærri en 50 brl. til og með 90 brl.
Stærri en 90 brl. ti I og með 110 brl.
Stærri en 110 brl.:
245 lestir
260 lestir
40 lestir
70 lestir
95 lestir
35 lestir
50 lestir
95 lestir
110 lestir
130 lestir