Ægir - 01.01.1990, Page 21
1/90
ÆGIR
13
Sala jókst á þorski, ufsa, karfa,
grálúðu, síld og skelfiski á franska
markaðinum, en dróst saman í
ýsu.
Mikil söluaukning varð einnig í
Vestur-Þýskalandi, hjá dótturfyrir-
tæki SH í Hamborg. Árið 1988
voru seld tæplega 10 þúsund tonn
af frystum sjávarafurðum þar í
landi frá aðildarhúsum SH, en í
fyrra tæplega 13 þúsund tonn.
Verðmætaaukning frá '88 varð
79%, en af einstökum tegundum
jókst sala á ufsa og karfa mest.
Markabir í Asíu
Flutt voru út 24 þúsund tonn til
fjarlægra Asíulanda á s.l. ári á
móti tæplega 18 þúsund tonnum
árið 1988. Verðmætaaukning
milli ára var 37%, en árið 1988
seldi SH fyrir 1.653 milljónir
króna og \ fyrra fyrjr 2.272
milljónir króna. Opnuð var mark-
aðsskrifstofa SH í Tókíó í fyrra og
hefur það haft góð áhrif á mark-
aðs- og sölumálin á þessum fjar-
lægu slóðum. Til Taiwan seldist
mest af grálúðu og er þar að skap-
ast framtíðarmarkaður, en til
Suður-Kóreu fór mest af heil-
frystum karfa.
1 Japan eru miklir framtíðar-
möguleikar fyrir íslenskar sjávaraf-
Uröir, enda eru japanir mestu fisk-
neytendur heimsins. Til Asíulanda
selst mest af karfa, ufsa, grálúðu,
S|ld, skelfiski og loðnuafurðum;
auk þess eykst sala á íslenskum
eldislaxi.
Markvisst og öflugt sölustarf
Oylfi Þór Magnússon, fram-
væmdastjóri markaðsdeildar SH,
segir að söluaukninguna megi
s ýra með mjög markvissu og
auknu sölustarfi erlendis og nánu
samspili söluskrifstofa SH í Banda-
nkíunum, Bretlandi, V-Þýskalandi
og lapan við markaðs- og fram-
ei sludeild samtakanna hér
eima. Framleiðslan varð nær
obreytt 1989 frá árinu áður, en
tekist hefur að draga úr birgðum
með aukinni sölumennsku á
öllum vígstöðvum. Þá hefur verð-
mætaaukning fengist með sölu á
meira unnum fiskflökum og vax-
andi innlendri vinnslu og sölu full-
unninna sjávarafurða í smápakkn-
ingum og neytendapakkningum.
Eins og fyrr segir var opnuð sölu-
skrifstofa í Tókíó á s.l. ári. Auk
þess var dótturfyrirtæki SH í Frakk-
landi, sem staðsett var í hafnar-
borginni Boulogne, flutt til Parísar
í fyrra, en í höfuðborginni er mið-
stöð allrar matvæladreifingar þar í
landi.
Nýr þáttur í sölustarfi SH
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
tók á síðasta ári upp nýjan þátt í
starfsemi sinni sem er sala á
íslenskum eldislaxi erlendis. Alls
seldi SH 224 tonn fyrir nærri 79
milljónir króna og fór salan aðal-
lega fram síðari hluta ársins. „Alls
voru flutt frá landinu um 1000
tonn af eldislaxi. Framboð á laxi
frá Islandi hefur hins vegar ekki
verið eins mikið og eldismenn
áætluðu því gert var ráð fyrir allt
að fjögur þúsund tonna fram-
leiðslu á síðasta ári," segir Hannes
Hafsteinsson sem sér um þessi mál
hjá markaðsdeild SH.
Mest var selt í Frakklandi eða
100 tonn fyrir rúmar 28 milljónir
króna, 70 tonn fóru til Bandaríkj-
anna og fengust rúmar 25 milljón-
ir króna fyrir þau, 47 tonn til Jap-
ans sem seldust fyrir rúmar 22
milljónir og rúm 6 tonn til Spánar.
Þessar tölur segja þó ekki allt því
flutnings- og pökkunarkostnaður
er misjafn til hinna ýmsu mark-
aða.
Fulltrúar þeirra laxeldisfyrir-
tækja sem unnið hafa með SH að
þessum málum voru boðaðir til
fundar hjá SH laugardaginn 13.
janúar þar sem rætt var um sam-
starfið og söluhorfur á þessu ári á
hinum erlendu mörkuðum. „Á
þessum fundi munu fulltrúar frá
söluskrifstofum og dótturfyrir-
tækjum SH í Frakklandi, Þýska-
landi, Japan og Bandaríkjunum
sem eru hér á landi í tengslum við
verkstjórafund SH greina frá
ástandi og horfum á sínum
svæðum. Við munum ræða vítt og
breitt við fulltrúa laxeldisfyrir-
tækjanna um sölumálin. Þessi
fyrirtæki eru ekki aðilar að SH eins
og frystihúsin en við munum
áfram bjóða þeim þjónustu
okkar," segir Hannes Hafsteins-
son.
Mikilvægt að tryggja framboð
Milli 25 og 30 aðilar á íslandi
hafa annast sölu á eldislaxi og
segir Hannes að þeim hafi
eitthvað fækkað. Mikilvægast er í
þessum efnum að geta tryggt
stöðugt framboð og náð samn-
ingum við innflytjendur í viðkom-
andi löndum sem geti ábyrgst sölu
á umtalsverðu magni. SH hefur
gegnum söluskrifstofur sínar er-
lendis náð sambandi við trausta
söluaðila.
Sjá varafurdadeildin
Helstu markaðssvæði Sjávar-
afurðadeildarinnar eru Bandarík-
in, Vestu-Evrópa, Austur-Asía og
Sovétríkin. Hér á eftir er gerð grein
fyrir heildarsölu deildarinnar,
skiptingu í afurðaflokka og á ein-
stök markaðssvæði.
Heildartölur
Eins og fram kemur hér fyrir
neðan jókst útflutningurinn í
krónutölu um 41.4% en í magni
um 15.6%.
1988 1989
Útflutningurtonn 46.480 53.710
Útflutningur mkr. (CIF) 6.439 9.106
Aukning m.v. magn 7.230 15.6%
Aukning m.v. verð (mkr.) 2.667 41.4%