Ægir - 01.09.1990, Side 22
474
ÆGIR
9/90
búnaði og tölvukerfum, sem
munu í vaxandi mæli prýða
fiskiskip framtíðarinnar. Ljóst er,
að hugsanlegt er að selja sjálfvirk
tilkynningakerfi á erlendum mark-
aði, enda hafa ýmsar fyrirspurnir
borist frá erlendum aðiljum um til-
raunirnar hér á landi. Forsenda
þess er hinsvegar sú, að þessi
tækni verði nýtt hérlendis til að
gegna því hlutverki, sem kerfið er
hannað fyrir.
Lokaorö
Rétt og skylt er að geta þess, að
unnið hefur verið að þessu verk-
efni með sérstakri fjárveitingu frá
Alþingi og hefur Samgönguráðu-
neytið haft umsjón með ráðstöfun
þess. Jafnframt veitti Rannsókna-
sjóður Rannsóknaráðs styrk árið
1986 til þróunar á skipstöðinni.
Náið samstarf hefur verið við
Slysavarnafélag íslands um þróun
kerfisins og kynningu þess. Góð
samvinna hefur einnig verið við
Póst- og símamálastjórn og Flug-
málastjórn. Öllum þessuni
aðiljum eru færðar þakkir >Vrir
veittan stuðning.
Þorgeir Pálsson er pröfessor við ver
fræðideild Háskólans og forstöou
maður kerfisverkfræðistofu Verkfrxot
stofnunar Háskólans. Hann lauk nanj1
frá flugverkfræðideild MIT árið 19'
með Sc.D. gráðu í stýri- og nlX,1.-
tækni. Vann um fjögurra ára skeið Na
The Analytic Sciences Corp. í Readjng'■
Mass. við rannsóknir á sviði stýri- og
staðsetningartækni en varð dósent vi
Háskólann árið 7 976.
Skipaþjónusta Suðurlands s/f
Unubakka 10 - 12, 815 Þorlákshöfn, Sími 98-33930 og 98-33541, Fax 98-33941
Bjóðum landsmönnum öllum í útgerð og
fiskvinnslu eftirfarandi þjónustu:
ÚTFLUTNINGUR SJÁVARAFURÐA INNFLUTNINGUR - SALA VEIÐARFÆRA
Sendum ferskan fisk Þú færð allt til veiðanna hjá okkur,
á markaði í Evrópu. stórt sem smátt.
Erum með kaupendur Erum einnig með úrval
að ýmsum unnum fiskafurðum. Fljót og örugg greiðsluskil. af vinnufatnaði.
UPPSKIPUN SJÁVARAFURÐA - ÚTSKIPUN AFURÐA
Bjóðum alla almenna þjónustu við uppskipun, útskipun og gámum fyrir fiskiskip
og fragtskip, á tímum þegar þér hentar. Góð vinna á vægu verði.
Reynið fljóta og örugga þjónustu. Það borgar sig.