Ægir - 01.09.1990, Blaðsíða 34
486
ÆGIR
9/90
NÝ
FISKISKIP
Haukafell SF 111
Nýtt tveggja þilfara alhliöa fiskiskip bættist við flota
Hornfirðinga 31. júlís.L, en þann dag kom Haukafell
SF III til heimahafnar sinnar, Hornafjarðar. Skipið,
sem er hannað af Ráðgarði h.f., er smíðað hjá skipa-
smíðastöðinni Carnave-Estaleiros í Portúgal, smíða-
númer 133, og er hið fyrsta í röð fjögurra skipa sem
smíðuð eru fyrir Islendinga. Áður hafa tvö fiskiskip
verið smíðuð fyrir íslendinga í Portúgal, það eru skut-
togararnir Jón Baldvinsson RE 208 og Már SH 127.
Hið nýja Haukafell kemur í stað Haukafells SF 1 't I
(sk. skr. nr. 108), 103 rúmlesta eikarbáts sem smíð-
aður var á Akureyri árið 1963. Skipið er búið til tog-,
nóta- og netaveiða.
Haukafell SF er í eigu samnefnds hlutafélags á
Höfn, Hornafirði. Skipstjórar á skipinu eru Axel Jóns-
son og Leó Óskarsson, en yfirvélstjóri er Þorvaldur
Gíslason. Framkvæmdastjóri útgerðar er Guðmundur
Eiríksson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki Stern
Trawler, lce C, Skipið er með tvö þilför stafna
á milli, perustefni, gafllaga skut, skutrennu upp á efra
þilfar og brú á reisn framan við miðju á efra þilfari.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með sex vatns-
Mesta lengd ......................... 25.95 m
Lengd milli lóðlína (HVL) ........... 23.40 m
Lengd milli lóðlína (perukverk) .... 21.65 m
Breidd (mótuð) ....................... 7.90 m
Dýpt að efra þilfari ................. 6.20 m
Dýpt að neðra þilfari ................ 3.80 m
Eiginþyngd ............................ 405 t
Særými (djúprista 3.80 m) ............. 514 t
Burðargeta (djúprista 3.80 m) ......... 109 t
Lestarrými ............................ 125 m3
Brennsluolíugeymar ................... 50.4 m3
Ferskvatnsgeymar ..................... 15.0 m3
Sjókjölfestugeymir .................... 8.2 m3
Brúttótonnatala ....................... 265 BT
Rúmlestatala .......................... 150 Brl
Skipaskrárnúmer ...................... 2038
þéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið framan
frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hliðarskrúfurými og
keðjukassar; íbúðarými með ferskvatnsgeymi í botnu
fiskilest með brennsluolíugeymum í botni; vélarum
með hljóðeinangruðum vélgæsluklefa fremst b.b--
megin og brennsluolíugeymum í síðum; dag- °§
smurolíugeymar og aftast eru brennsluolíugeymar.
Fremst á neðra þilfari er geymsla, þar fyrir aftan eru
íbúðir og síðan vinnuþilfar. Aftan við vinnuþilfar er
fiskmóttaka fyrir miðju, verkstæði og vélarreisn b.b.-
megin og stigagangur s.b.-megin, en aftast er rým'
fyrir togvindur úti í síðum og stýrisvélarrými fyrir
miðju.
Brú skipsins er framan við miðju, og hvílir á um 1-5
m hárri reisn. Vörpurenna kemur í framhaldi af skut-
rennu, hún greinist í tvær rennur, sem liggja 1
gegnum brúarreisn og ná fram undir stefni og er unnt
að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða-
Nótakassi er s.b.-megin við vörpurennu. Snurpigálg1
er s.b.-megin framan við brú, og yfir afturbrún skut-
rennu er toggálgi, en pokamastur yfir frambrún skut-
rennu, ofan á vélarreisn b.b.-megin og niðurgangs-
kappa s.b.-megin. Ofan á brúarþaki eru möstur fyrir
loftnet og Ijós, og hífingablakkir í afturkanti brúar.
Vélabúnaður:
Aðalvél er frá Stork-Werkspoor, sex strokka fjor'
gengisvél með forþjöppu og eftirkæli. Vélin tengist
niðurfærslu- og skiptiskrúfubúnaði frá Finnoy, með
innbyggðri kúplingu. Utan um skrúfu er stýrishringur
frá Finnpy.
TX
t •-/
HAUKAFELL
Haukafell SF. 111. Ljósmyndir með grein: Tæknideild/jS■