Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1990, Qupperneq 34

Ægir - 01.09.1990, Qupperneq 34
486 ÆGIR 9/90 NÝ FISKISKIP Haukafell SF 111 Nýtt tveggja þilfara alhliöa fiskiskip bættist við flota Hornfirðinga 31. júlís.L, en þann dag kom Haukafell SF III til heimahafnar sinnar, Hornafjarðar. Skipið, sem er hannað af Ráðgarði h.f., er smíðað hjá skipa- smíðastöðinni Carnave-Estaleiros í Portúgal, smíða- númer 133, og er hið fyrsta í röð fjögurra skipa sem smíðuð eru fyrir Islendinga. Áður hafa tvö fiskiskip verið smíðuð fyrir íslendinga í Portúgal, það eru skut- togararnir Jón Baldvinsson RE 208 og Már SH 127. Hið nýja Haukafell kemur í stað Haukafells SF 1 't I (sk. skr. nr. 108), 103 rúmlesta eikarbáts sem smíð- aður var á Akureyri árið 1963. Skipið er búið til tog-, nóta- og netaveiða. Haukafell SF er í eigu samnefnds hlutafélags á Höfn, Hornafirði. Skipstjórar á skipinu eru Axel Jóns- son og Leó Óskarsson, en yfirvélstjóri er Þorvaldur Gíslason. Framkvæmdastjóri útgerðar er Guðmundur Eiríksson. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki Stern Trawler, lce C, Skipið er með tvö þilför stafna á milli, perustefni, gafllaga skut, skutrennu upp á efra þilfar og brú á reisn framan við miðju á efra þilfari. Undir neðra þilfari er skipinu skipt með sex vatns- Mesta lengd ......................... 25.95 m Lengd milli lóðlína (HVL) ........... 23.40 m Lengd milli lóðlína (perukverk) .... 21.65 m Breidd (mótuð) ....................... 7.90 m Dýpt að efra þilfari ................. 6.20 m Dýpt að neðra þilfari ................ 3.80 m Eiginþyngd ............................ 405 t Særými (djúprista 3.80 m) ............. 514 t Burðargeta (djúprista 3.80 m) ......... 109 t Lestarrými ............................ 125 m3 Brennsluolíugeymar ................... 50.4 m3 Ferskvatnsgeymar ..................... 15.0 m3 Sjókjölfestugeymir .................... 8.2 m3 Brúttótonnatala ....................... 265 BT Rúmlestatala .......................... 150 Brl Skipaskrárnúmer ...................... 2038 þéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hliðarskrúfurými og keðjukassar; íbúðarými með ferskvatnsgeymi í botnu fiskilest með brennsluolíugeymum í botni; vélarum með hljóðeinangruðum vélgæsluklefa fremst b.b-- megin og brennsluolíugeymum í síðum; dag- °§ smurolíugeymar og aftast eru brennsluolíugeymar. Fremst á neðra þilfari er geymsla, þar fyrir aftan eru íbúðir og síðan vinnuþilfar. Aftan við vinnuþilfar er fiskmóttaka fyrir miðju, verkstæði og vélarreisn b.b.- megin og stigagangur s.b.-megin, en aftast er rým' fyrir togvindur úti í síðum og stýrisvélarrými fyrir miðju. Brú skipsins er framan við miðju, og hvílir á um 1-5 m hárri reisn. Vörpurenna kemur í framhaldi af skut- rennu, hún greinist í tvær rennur, sem liggja 1 gegnum brúarreisn og ná fram undir stefni og er unnt að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða- Nótakassi er s.b.-megin við vörpurennu. Snurpigálg1 er s.b.-megin framan við brú, og yfir afturbrún skut- rennu er toggálgi, en pokamastur yfir frambrún skut- rennu, ofan á vélarreisn b.b.-megin og niðurgangs- kappa s.b.-megin. Ofan á brúarþaki eru möstur fyrir loftnet og Ijós, og hífingablakkir í afturkanti brúar. Vélabúnaður: Aðalvél er frá Stork-Werkspoor, sex strokka fjor' gengisvél með forþjöppu og eftirkæli. Vélin tengist niðurfærslu- og skiptiskrúfubúnaði frá Finnoy, með innbyggðri kúplingu. Utan um skrúfu er stýrishringur frá Finnpy. TX t •-/ HAUKAFELL Haukafell SF. 111. Ljósmyndir með grein: Tæknideild/jS■

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.