Ægir - 01.10.1990, Síða 12
516
ÆGIR
10/90
Reynsla fyrstu mánaðanna hefur
þegar sýnt, að þurkunaraðferð
þessi kemur að tilætluðum notum
og má því búast við, að lík þurk-
unarhús og þetta verði reist bæði í
Reykjavík og annarstaðar."
Félagið hætti störfum í krepp-
unni 1931. Ekki var þó um eigin-
legt gjaldþrot að ræða, en Magnús
Blöndahl mun hafa gengið nær
eignalaus frá þessum rekstri. Hann
lést í Reykjavík sjötugur að aldri,
þann 3. mars 1932.
Eftir að starfsemi Sleipnis hf.
lauk, tók Kveldúlfur hf. aðstöðuna
í Haga á leigu í tvö ár. Þá tók
Ingvar Vilhjálmsson stöðina á
leigu og verkaði þar saltfisk og
skreið árin 1935-1937. Árið 1941
fékk Eimskip þar inni fyrir vöru-
geymslur. Sama ár flutti verk-
smiðjan Vífilfell hf. í húsið og þar
framleiddi fyrirtækið síðan Coca-
Cola í áratugi.
Fiskverkun er gekk undir nafn-
inu „Litli Hagi" var rekin um eitt-
Við Hauksbryggju um 1930.
hvert skeið við túnfótinn í Haga.
Fyrir fiskverkun þar stóð Ingi-
mundur Pétursson fiskmatsmaður.
Hann mun einkum hafa verkað
fisk fyrir Steingrím Magnússon (f.
1895) í Fiskhöllinni við Norðurstíg
(gegnt Hafnarbúðum).
Sigurður Jónsson „í Görðunum"
(f. í Skildinganesi 1865), útvegs-
bóndi og fiskverkandi, kenndur
við býli sitt „Garða" við Ægisíðu,
rak um áratugaskeið útgerð og
fiskverkun frá og á sjávarkamb-
inum við Ægisíðuna. Hann var
skútuskipstjóri fram undir miðja
ævi. Er hann lét af sjómennsku,
keypti hann land í Görðum. Þar
rak hann jafnframt nokkurn bú-
skap. Margt kvenna úr næsta ná-
grenni og austan úr sveitum vann
hjá honum við fiskþvott og fisk-
breiðslu. Bæði var um það að
ræða að þarna væri verkaður afli
af hans eigin útvegi og eins tók
hann fisk til verkunar frá öðrum,
þ.á.m. Fiskveiðahlutafélaginu ís-
land („íslandsfélaginu") á Kirkju-
sandi, en í því var hann hluthafi.
Jón „í Görðunum" sonur Sigurðar
er þekktur sjósóknari og aflamað-
ur.
íbúðarhúsið í Görðunum stend-
ur enn, við Ægisíðuna. Neðst í
lóðinni standa gömlu fiskhúsin,
rauðmáluð, en orðin lúin undan
ágangi seltu og storma um nær
einnar aldar skeið.
Fiskverkun Alliance hf. á Þor-
móðsstöðum, stóð við sjóinn
skammt frá enda flugbrautarinnar
neðan Starhaga. Þar reisti félagið
nokkur fiskverkunarhús um og
eftir 1925. Á Þormóðsstöðum
hafði félagið Bræðingur hf. grútar-
bræðslu. Af því íélagi keypti
Alliance lóð undir starfsemi sína.
Alliance starfaði um árabil á
Þormóðsstöðum. Eftir að félagið
hætti útgerð og fiskvinnslu fóru
húsin í niðurníðslu með árunum.
Þau voru rifin laust upp úr 1980.
Þar eru nú sléttar grundir. Hús'n
voru síðast í vörslu Landsban a
íslands. Þeirra gætti árum saman
af mikilli trúmennsku, Eðvat
Jónsson „Ebbi í Alliance" (f- ^
- d. 1981) frá Mörk við Bræðra-
borgarstíg, fyrrum togarasjómaður
úr flota félagsins. Hann bjó vl
Framnesveg. Fór hann nokkrar
ferðir á sólarhring, alltaf gan®.
andi, fram og til baka frá heimi i
sínu til eftirlits þangað suður eftir'
en ýmsir aðilar, þ.á m. Þóroddnr
E. Jónsson, skinna- hrogna- °§
skreiðarkaupmaður, höfðu þar
geymsluaðstöðu. Sagði Ebbi þar
ýmsa á ferli sem aðrir höfðu ek '
hæfileika til að koma auga a'
hvorki á meðan birtu naut né eft>r
að skyggja tók.
í kompu sem hann hafði aðsetur
í á Þormóðsstöðum, gaf á að l>ta
ýmsa merka muni úr gömlum
skipum eða strandgóssi, þ- a nl'
hurð og klukku úr gamla Suður-
landinu, sem nú liggur ryðbrunm
og lúið í fjörunni við síldarverk
smiðjuna í Djúpuvík við Reykjar-
fjörð á Ströndum. Þar þjónað'
þetta gamla strandferðaskip a
endingu sem verbúð fyrir starfsfól'
síldarverksmiðjunnar, en hún var >
eigu Alliance hf.
Frá Skerjafirðinum höldum við
út á Bráðræðisholt. Þar stóð 3
sinni tíð fiskverkunarstöðin
„Dvergur". Fyrirtækið sem bót
störf árið 1923 var í eigu þeirra
Ingimundur Jónssonar („á Sandim
um"), sem verið hafði um árab'
verkstjóri hjá „Fiskveiðahlutafe-
laginu íslandi" og Jóns Magnús-
sonar, yfirfiskimatsmanns í Lindar-
brekku. Þeir félagar voru áður
meðeigendur að félaginu Haukur
hf. Fiskverkun og stakkstæði a
Bráðræðisholtinu voru tvískip1-
efri og neðri Dvergur, náðu Vf 1 r
víðáttumikið svæði, allt frá CamP
Knox braggasvæðinu við Kapla
skjólsveg, langleiðina niður að sl°
við Eiðisgranda (Sólarlagsbraut) og