Ægir - 01.10.1990, Qupperneq 34
538
ÆGIR
10/90
Búnabur til titringsmælinga
Almennt
Á sviði mælingatækni hefur
Tæknideild Fiskifélags íslands og
Fiskveiðasjóðs útvíkkað starfsemi
sína með nýjum búnaði til titrings-
mælinga. í rúmt ár hefur undir-
búningur staðið yfir og hefur verið
lögð mikil vinna í öflun þessa bún-
aðar og frágangs á honum í „heild-
arpakka".
Við þessu máli var hreyft vegna
fyrirspurnar eða beiðni um at-
hugun á titringi í ákveðnu skipi.
Reyndar hafa slíkar beiðnir áður
komið og þegar grannt er skoðað
þá er þetta sennilega algengara
vandamál en talið er.
Hjá deildinni hefur verið til
ákveðinn búnaður til upptöku og
hljóðgreiningar á hávaða yfir
ákveðinni tíðni. Umræddur bún-
aður var m.a. notaður til grein-
ingar á skrúfuhávaða í síldar-
skipum á sjöunda áratugnum.
Þessi búnaður getur þó ekki greint
tíðni undir 20Hz (riðum), sem er
nauðsynlegt þegar um er að ræða
titringsvandamál.
Titringur í fiskiskipum er flókið
svið sem krefst fagkunnáttu,
reynslu og mælitækni. Eitt er að
geta mælt og greint titring, annað
að benda á uppsprettu hans og
þriðja að koma með tillögur til
úrbóta. Það er von starfsmanna að
með tímanum megi byggja upp
færni á þessu sviði, þannig að
deildin geti veitt ákveðna þjónustu
á sviði titringsvandamála.
Tæknileg atriði
f stórum dráttum má skipta bún-
aði til titringsmælinga í þrjá hluta:
I Titringsneminn og magnara- I
búnaður tengdur honum, er
skilar titringsmerkinu frá sér á
því formi og styrk sem nauð-
synlegur er fyrir frekari
úrvinnslu merkisins.
II Búnaður til þess að skrá titr-
ingsmerkið frá hluta I, þannig
að hægt sé að skoða merkið og
meta eftir að mæling hefur
farið fram.
III Titringsgreinir sem tekur
við titringsmerkinu, annað
hvort samtíma merki beint frá
búnaðinum í hluta I, eða
mæliupptöku frá skráningar-
tækinu sem lýst er í hluta II.
Hér verður gerð stutt grein fyrir
eiginleikum þessara þriggja þátta.
I Titringsneminn er gerður úr
piezo-krystal er myndar rafspennu
í réttu hluttalli við og af sömu tíöm
og hröðun titringsmerkisins, enda
er heiti hans í ensku máli accel-
erometer (acceleration = hröðun)-
Að vísu eru til nemar er maela
hraða titringsmerkisins og einmg
aðrir er mæla útslagið, en það er
þó algengast að mæla hröðunina.
Auk magnara þá getur búnaðurinn
haft tegurrásir og þannig má t'á
bæði hraða og útslag titringssveifl-
unnar, þótt einungis hröðun
hennar sé mæld. Oft er heppileg*
að nota hraða titringsmerkisins,
vegna þess að þá mælist til jafn-
aðar svipaður styrkur hinna ýmsu
tíðniþátta merkisins, en það getur
möguleika á meiri mælinákvæmm
(sjá mynd 1).
II Sem skráningartæki hafa fram
að þessu mikið verið notuð sérstök
segulbandstæki er geta skráð lag-
tíðnimerki og þá gjarnan tTa
nokkrum rásum samtímis. I dager
á markaðnum búnaður sem teng-
ist tölvu og getur skráð á diskling
merki frá nokkrum rnælirásum
samtímis en þar með eru maeli-
gögnin komin á tölvutækt form-
Mynd 1: Dæmigerð titringsmæling. Myndin sýnir hröðun, hraða og utsl^S
titringssveiflunnar.