Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1990, Síða 12

Ægir - 01.11.1990, Síða 12
572 ÆGIR 11/90 lögur Hafrannsóknastofnunar liggja fyrir. Veiðar hafa gengið betur á þessu ári en því síðasta og því ástæða til nokkurrar bjartsýni um ástand stofnsins. IV. Vigtunarmál, Fiskveiði- stoínun, Fiskifélag íslands í lögum um stjórn fiskveiða, sem samþykkt voru á Alþingi er skylda lögð á hafnaryfirvöld að hafa yfirumsjón með vigtun afla og söfnun upplýsinga um land- aðan afla. Jafnframt segir í lögunum að ráðuneytið skuli í samráði við Samgönguráðuneytið og Hafnarsamband sveitarfélaga kveða nánar á um hvernig afli skuli veginn og söfnun upplýsinga um landað magn. í framhaldi af samþykkt þessara laga hefur ráðuneytið, í samstarfi við Hafnarsamband sveitarfélaga, mótað nýjar reglur um vigtun sjáv- arafla. Þessu verkefni hefur miðað vel þótt ekki hafi það gengið átakalaust fyrir sig, enda vart við öðru að búast því aðstæður eru mismunandi í einstökum ver- stöðvum. Með þessari breytingu er stefnt að því að vigtun afla og skráning á aflaupplýsingum fari fram á þeim stað sem aflanum er landað og undir eftirliti þeirra sem best þekkja til aðstæðna í viðkomandi verstöð. Nýlega var gerður samningur milli ráðuneytisins, Hafnarsam- bands sveitarfélag og Tölvuþjón- ustu Sambands íslenskra sveitar- félaga um gerð tölvukerfis, sem setja á upp og taka í notkun á næsta ári í höfnum landsins. Hafn- irnar munu tengjast tölvu Haf- rannsóknastofnunar og senda dag- lega upplýsingar um landaðan afla í viðkomandi byggðarlagi. Með þessu móti skal tryggt að allur sjávarafli verði veginn með sam- bærilegum hætti. Jafnframt er unnið að því að upplýsingar um landaðan afla berist til stjórnvalda í tölvutæku formi beint frá vigtunaraðilum. Allt frá árinu 1986 þegar gagn- ger breyting varð á sjóðakerfi sjáv- arútvegsins og Aflatryggingasjóður var lagður niður hef ég í ræðum mínum hér á Fiskiþingi lýst þeirri skoðun að hlutverk og starfsemi Fiskifélags íslands þyrfti að endur- skoða. Þær öru breytingar sem orðið hafa í íslensku þjóðfélagi og breyttar aðstæður í sjávarútvegi hafa nú skapað knýjandi þörf á viðbrögðum af hálfu félagsins og endurmati á hlutverki og starfsemi þess. Ráðuneytið hefur lýst sig reiðubúið til að aðstoða við að marka félaginu framtíðarstefnu sem tæki mið af hagsmunum stjórnvalda, félagsmanna og starfsmanna Fiskifélagsins. Það var því skref í rétta átt þegar Fiskiþing setti á fót milliþinga- nefnd til að endurskoða lög og skipulag Fiskifélagsins. Fulltrúi ráðuneytisins hefur tekið þátt í störfum nefndarinnar. Ég hafði vonað að nefndin myndi í sam- vinnu við hagsmunaaðila innan vébanda félagsins móta skýrar til- lögur til nauðsynlegra breytinga á félaginu og aðlögun þess að breyt- ingum í stjórnkerfi sjávarútvegs- ins. Nefndin mun væntanlega gera grein fyrir starfi sínu hér á þinginu. Það er samt sem áður Ijóst að nefndin hefur ekki komið sér saman um tillögur til lausnar þeirra viðfangsefna sem blasa við. Þetta eru mér nokkur vonbrigði því óbreytt ástand er ekki til far- sældar fyrir framtíð Fiskifélag. Ég hef sett fram þá hugmynd, m.a. á fundi með formanni milli- þinganefndar, að sett yrði á fót sérstök stofnun, sem kalla mætti Fiskveiðistofnun, sem tæki við hluta þeirrar stjórnsýslu og eftir- litsstarfsemi sem nú fer fram hjá Sjávarútvegsráðuneytinu, Fiskifé- lagi íslands og Hafrannsóknastofn- un. Ennfremur mætti huga að því hvort heppilegt væri að fella starf- semi sem nú fer fram hjá Ríkísmati sjávarafurða undir þessa nýju stofnun. Fiskveiðistofnun myndi annast ýmsa framkvæmd fiskveiðistjórn- unar og almenns veiðieftirlits- Ennfremur myndi stofnunin annast alla öflun og skráningu upplýsinga um fiskveiðar og fiskvinnslu. Stofnun þessi myndi því í raun taka að veigamiklu leyti við þeirrl starfsemi ráðuneytisins sem snýr að daglegri stjórn fiskveiði, veiði- eftirliti ráðuneytisins og öðrum verkefnum. Tæki hún einnig við allri skýrslusöfnun og úrvinnslu Fiskifélags íslands. Rekstur tölvu- miðstöðvar Hafrannsóknastofnun- arinnar með skráningu og vinnslu ýmissa gagna myndi flytjast til þessarar nýju stofnunar. Gera ma ráð fyrir að störf við stofnunina yrðu nálægt 35—40, sem flytjast myndu að mestu leyti frá fyrr' nefndum stofnunum. Fjöldi starfs- manna yrðu vitanlega meiri ef Ríkismat sjávarafurða yrði einnig sameinað þessari stofnun. Virðist mér að slík sameining gæti að ýmsu leyti verið heppileg t.d. með tilliti til samvinnu veiðieftirlits og Ríkismatsins. Þessi hugmynd um sérstaka Fiskveiðistofnun set ég fram m.a. ' kjölfar þeirrar umræðu sem varð þegar nýsamþykkt lög um stjórn fiskveiða voru til meðferðar a Alþingi s.l. vor, en með slíkn stofnun má ná tveimur mjög mikil- vægum markmiðum. í fyrsta lag' yrði um valddreifingu að ræða þv^ þessi stofnun hefði opinbert vald i ýmsum mikilvægum málaflokkum sem snerta fiskveiðistjórnun og veiðieftirlit. í dag þykir samrýmast betur grundvallarreglum stjórn- sýslu að slík verkefni séu færð til sjálfstæðrar stofnunar í stjórnkerf- inu. Með því myndi opnast mögU' leiki til þess að bera ákvarðaiiir þessarar stofnunar undir úrskurð æðra stjórnvalds, þ.e. ráðuneyt- isins.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.