Ægir - 01.11.1990, Side 51
'1/90
ÆGIR
611
skapa hvort tveggja. Gjarnan
naættu stjórnvöld minnast þessa á
afrnælisári Stýrimannaskólans í
Reykjavík.
Á hverju ári sendum viö þeim
sýrstakt bænarskjal eins og Alþingi
islendinga sendi dönsku stjórninni
forðum daga; bænarskjal þetta
nýfnist fjárlagatillögur. Og þó aö
e8 fyrir hönd Stýrimannaskólans
þurfi ekki að kvarta s.l. ár, þá
þefur þessari stofnun oft verið allt
°f þröngt skorinn stakkurinn.
A næsta fjárhagsári vona ég að
^yndarlega verði gert við Stýri-
m3nnaskólann og við fáum á
næstu fjárlögum fé til að kaupa
fiskveiðisamlíki svo að skólinn
standi jafnfætis samsvarandi
skólum í næstu nágrannalöndum,
Stýrimannaskólanum í Þórshöfn í
færeyjum, Fanö í Danmörku og
fieiri nágrannalöndum V-Evrópu.
I sumar var gert gott átak f lóð
SJómannaskólans upp á einar
fjórar milljónir króna, en betur má
ef duga skal og höfum við skóla-
stjórar Sjómannaskólahússins farið
fram á að fá það fjármagn sem á
vantar til að Ijúka lóðinni eða 15
milljónir króna. Ég vona að það
gangi eftir".
Áformað er að minnast 100 ára
afmælis Stýrimannaskólans í
Reykjavík á næsta ári. Póst- og
símamálastjórnin mun gefa út
sérstakt frímerki og Einar S. Arn-
alds sagnfræðingur hefur verið
ráðinn til þess að rita sögu skólans
og rennur til þess fé Sögusjóðs,
sem eldri nemendur Stýrimanna-
skólans hafa gefið til á undan-
förnum árum.
Skólanefnd Stýrimannaskólans
tilnefndi 3ja manna ritnefnd sagn-
fræðingnum til fulltingis og nýlega
var gerð tillaga um 5 manna
afmælisnefnd, sem er ætlað að
gera tillögur og sjá um hátíðahöld
í tilefni 100 ára afmælis skólans og
verði nefndin tengiliður Stýri-
mannaskólans og eldri nemenda
svo og fulltrúa sjávarútvegs og
siglinga sem og allra velunnara
skólans, yfirvalda og systurstofn-
ana innanlands og utan.
Afmælisnefndina skipa samtals
5 fulltrúar, einn frá hverjum eftir-
talinna stofnana og samtaka:
Farmanna- og fiskimannasam-
bandi íslands (FFSÍ), Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna
(LIU), Nemendaráði Stýrimanna-
skólans (Nemenda úr hópi núver-
andi nema), Sambandi íslenskra
kaupskipa (SIK), og Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík.
Við 100. skólasetninguna var
auk nemenda og kennara fjöldi
gesta, sem þáðu að lokinni setn-
ingu kaffi og meðlæti í matsal Sjó-
mannaskólans.
Eftirtaldir luku skipstjórnar-
prófum 1. stigs í september 1990:
Ásgeir Cuðbjartur Pálsson
Egill Örlygsson
Cuðmundur Unnþór
Hallsson
Cuðmundur Þorkelsson
Jón HalldórMalmquist
Stefán Björn Magnússon
Lögheimili:
ísafirði
Blönduós
Eskifirði
Þorlákshöfn
Höfn Hornafirði
Fáskrúðsfirði
VEIST ÞÚ
Að það er lögboðin skylda að nota
einungis löggiltar vogir við hvers kyns
verslun og viðskipti. Þetta er gert til
að tryggja sem kostur er,
að rétt sé vegið og á engan hallað.
Er vogin þín löggilt?
Gættu að því!
LÖGGILDINGARSTOFAN
The lcelandic Bureau of Legal Metrology
SÍÐUMÚLA13 - PÓSTHÓLF 8114 - IS-128 REYKJAVÍK