Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1992, Qupperneq 16

Ægir - 01.06.1992, Qupperneq 16
296 ÆGIR 6/92 Jón Þ. Þór: Sókn þýskra togara á íslandsmið fram að síðari heimsstyrjöld Veiðisaga þýskra togara á ís- landsmiðum var bæði löng og merk, og eins og margir munu minnast, voru Vestur-Þjóðverjar meðal ákveðnustu andstæðinga okkar í þorskastríðunum, deilum vegna útfærslu íslensku fiskveiði- lögsögunnar í 12, 50 og 200 sjó- niílur. í þessum deilurn höfðu Bretar jafnan forystu fyrir þeim út- lendu þjóðum, er reyndu að hamla útfærslunni, en Vestur- Þjóðverjar fylgdu þeim fast og má það kallast næsta eðlilegt þegar litið er til veiða útlendinga hér við land á þessari öld. Þar voru Bretar jafnan umsvifamestir og mest á- berandi, en þegar nánar er að gáð, kemur í Ijós, að veiðar Þjóð- verja á íslandsmiðum voru oft á tíðurn aðeins litlu minni en veiðar Breta og miðin hér við land ekki síður mikilvæg þýskum sjávarút- vegi en breskum. Af einhverjum ástæðum virðast íslendingar þó yfirleitt hafa orðið minna varir við þýsku togarana en þá bresku og kann það að hafa stafað af því að Þjóðverjarnir héldu sig meira á tilteknum, afmörkuðum veiðislóð- um, veiddu t.d. fremur lítið á Faxaflóa og höfðu minni mök við landsmenn en Bretarnir. Þýskir togarar leituðu t.d. mun sjaldnar hafnar hér á landi en hinir bresku og komu á færri hafnir. í þessari ritgerð verður þess freistað að rekja nokkuð upphaf botnvörpuveióa Þjóðverja hér við land og greina síðan frá sókn þeirra á íslandsmið fram til þess er síðari heimsstyrjöldin braust út haustið 1939. I Fyrstu heimildir, sem til eru um að þýsk skip hafi reynt botn- vörpuveiðar hér við land eru frá sumrinu 1889. I júnímánuði það ár kom þýskt skip, President Herwig, til Reykjavíkur,1 og reyndi fyrir sér um botnvörpu- veiðar á Faxaflóa. Skipverjar voru vitaskuld ókunnugir fiskislóðum í Flóanum og svo virðist sem þeir hafi verið óheppnir með togslóð því samtímaheimild hermir að þeir hafi sópað öllu sem í botnin- um var og rifið vörpuna.2 Flafa þeir vafalaust lent á hrauni. Ekki verður nú séð að Þes5' fyrsta tilraun Þjóðverja til botn- vörpuveiða hér við land hafi nei^ bein áhrif, en hún var engu a síður talandi tákn um, hve'* stefndi í fiskveiðum ýmissa þjóc'J Norður-Evrópu um þessar munö' ir. Bretar reyndu botnvörpuveiðar á gufuskipum við ísland í tyrsta skipti þetta sama sumar og nia vafalaust rekja siglingu þeirra þýska skipsins hingað til lands 11 sömu rótar: fiskistofnum í Norður sjó var tekið að hnigna sökum ot veiði, en þar höfðu gufusk'P stundaö botnvörpuveiðar Up1 nærfellt tveggja áratuga Árangurinn af ferð Herwig til íslands sum---- , virðist ekki hafa orðið til ÞeSS a skeið- PresideP ,rið 1889 Tafla I Afli þýskra togara á íslandsmiðum 1903-1914 (torrn) Ár Þorskur Ýsa Ufsi Annað Sanitals 1903 3.918 2.570 517 816 7.821 1904 3.767 3.776 774 1.144 9.461 1905 4.477 5.470 2.074 1.181 13.202 1906 6.695 6.135 3.635 1.374 17.839 1907 8.773 5.219 2.967 3.115 20.074 1908 9.026 4.951 2.555 3.911 20.443 1909 12.686 6.281 3.168 4.681 26.816 1910 13.049 5.745 3.932 6.294 29.020 1911 13.455 5.864 4.692 6.774 30.785 1912 15.389 5.872 4.254 5.085 30.600 1913 16.411 5.157 5.641 4.297 31.506 1914 14.561 3.252 3.330 2.361 23.504 Heimild: Bulletin Statistique 1903-1914.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.