Ægir - 01.01.1993, Page 24
Mynd 13. Stofnvísitölur helstu fisktegunda (þús. tonn) í
stofnmœlingu botnfiska 1985-1992.
Mynd 14. Staðalfrávik stofnvísitalna helstu fisktegunda í
stofnmœlingum 1985-1992.
a) Þorskur
Stofnvísitala þorsks áriö 1992 reyndist sú lægsta sem
mælst hefur, eða 216 þús. tonn, en var um 290 þús. tonn
1990 og 1991 (13- mynd). Petta er í samræmi við það að
stofnstærð í ársbyrjun 1992, skv. niðurstöðum V.P. grein-
ingar, var lægri en áður hefur þekkst. llins vegar var
stofnstærö 1991 skv. V.P. greiningu um 120 þ.t. lægri en
hún var í ársbyrjun 1990. (Sbr. Nytjastofnar sjávar og um-
hverfisþættir 1992. Aflahorfur fiskveiðiárið 1992/93- Haf-
rannsóknastofnunin. Fjölrit nr. 29.)
Lækkun stofnvístölu úr 513 þús. tonnum 1989 í uffl
216 þús. tonn 1992, eða um tæp 60%, er ekki í samræmi
við um 40% minnkun á stofnstærð skv. V.P. greiningu á
sama timabili. Þetta misræmi má skýra með minni veið-
anleika þorsks á hrygningarslóðinni heldur en á uppeld-
isstöðvum, en stóru árgangarnir frá 1983 og 1984 gengu
at uppeldisstöðvunum norðan lands og austan til hrygn-
ingar á suðursvæði á þessurn árum. (Sbr. Stofnmæling
botnfiska á íslandsmiðum 1990. Hafrannsóknastofnunin.
Fjölrit nr. 22.)
20 ÆGIR 1. TBL. 1993