Tímarit lögfræðinga - 01.06.1959, Qupperneq 38
fyrir væntanlega kjörforeldra og fyrir dómstóla, er leysa
eiga úr ættleiöingarmálum. Á reynslutímabilinu fj'lgjast
barnaverndarnefndir eða starfsmenn þeirra með högum
fósturbarns á heimili og fá þá gleggri mynd en ella af
heimilisbrag og hæfni fósturforeldra til að veita barni
uppeldi. Þessir hættir munu öðrum þræði stafa af þvi, bve
örðugt er í stórborgum fyrir barnaverndarnefndir og aðra
þá, sem eiga að kynna sér heimili væntanlegrakjörforeldra,
að ganga úr skugga um liæfni fólks til uppeldis. Horfir
það mál að mörgu leyti öðru visi við hér i smábýlinu.
Ýmsir ókostir stafa og af slíku reynslutimabili. Með þvi
skapast veruleg óvissa i hugum liinna væntanlegu kjör-
foreldra um afdrif þessa máls og það getur með nokkr-
um hætti skapað óholl hughrif á heimilinu, og vissulega
getur það verið mjög þungbært fyrir fósturforeldra að láta
barn frá sér fara eftir þetta reynslutímabil. Gæti slík til-
bögun einnig dregið til muna úr þvi, að fólk tæki að sér
börn til ættleiðingar, þvi að margir væru ófúsir að ganga
undir slíkt próf — og á það ekki sízt við ýmsa ærukæra
menn. Það er vissulega böfuðþörf á að vanda betur en nú
er gert til athugana í öndverðu á heimili ættleiðenda, en
ég tel, að fremur eigi að stefna að umbótum á þvi sviði
en að lagabrevtingum slikum sem hér greindi.
Þótt gilt samþykki til ættleiðingar hafi verið látið uppi,
getur svo farið, að samþykkjandi taki það aftur. Ef sú
breytta afstaða samþykkjanda er ekki kunn ráðuneyti á
þeim tíma, er ættleiðingarlevfi er gefið, mun leyfinu ekki
verða hrundið af þessari ástæðu. Hitt er mikið álitamál,
livernig fari, ef ráðunevtinu befir verið tilkynnt afturköll-
un, áður en leyfi er gefið út. Skoðanir fræðimanna bafa
verið skiptar um það, hvort unnt sé að veita ættleiðingar-
leyfi, þegar svo stendur á. Yfirleitt er viðhorfið það um
yfirlýsingar á vettvangi sifjaréttar, að þær eru afturtæk-
ar allt fram til þess, að stjórnvöld hafa leyst úr máli
(sbr. t. d. beiðni um hjónaskilnað og margskonar samn-
inga milli bjóna, sem taldir eru afturtækir hvenær sem
100
Tímarit lögfrœðinga