Tímarit lögfræðinga - 01.06.1959, Side 71
Af yfirliti þessu má sjá, að flest þessara ríkja hafa lýst
yfir 6 mílna landhelgi eða fiskveiðilögsögu á síðustu ára-
tugum. Þrátt fyrir hinn tiltölulega skamma tíma, sem
liðinn er frá yfirlýsingunum, er þó engu að siður talið,
að 6 mílna landlielgismörkin njóti fullkominnar viður-
kenningar bæði de facto og de jure.
Fáeinar þjóðir hafa markað landhelgi sína milli 6 og
12 milna og hafa þau mörk verið virt i verki, þótt ekki sé
unnt að ræða þar um myndun réttarvenju um ákveðin
mörk sökum fæðar þeirra rílcja. Argentína lýsti vfir 10
mílna fiskveiðilandhelg'i 1910, Mexikó 9 milna landhelgi
1944, Júgóslavía 10 mílna fiskveiðilandhelgi 1950 og Al-
bania 10 mílna landhelgi 1952.
Rússland var ríkja fyrst til þess að lýsa vfir 12 milna
landhelgi '1909. Síðan kom Guatemala 1934, Ecuador 1950,
Libva 1954, (fiskveiðilögsaga Lihyu var þó aðeins 6 míl-
ur 1939), Ethiopia 1953, Bulgaria 1951, Venezuela 1956,
Rúmenía 1956, Indónesia 1957, Sameinaða Arabalýðveldið
1958, Irak 1958, Kina (Peking) 1958,x) Iran 1958, Saudi-
Arahia 1958, Panama 1959. Chile lýsti vfir 50 km. land-
helgi 1941 og El Salvador 200 milna landhelgi 1950.
Tólf milna fiskveiðilandhelgi: Colomhia 1923, Brasilia
1938, Kanada 1952,1 2) Dominiska lýðveldið 1952, Cambodia
1957, Thailand 1958, Island 1958, Costa Rica lýsti yfir
200 milna fiskveiðilandhelgi 1949 og Cevlon 100 mílna
fiskveiðilandhelgi 1957. Perú lýsti yfir óskoruðum rikis-
yfirráðum (full sovereignity) vfir landgrunnshafinu (200
1) Texti yfirlýsingar Pekingstjórnarinnar um 12 milna land-
helgi Kina, sjá New York Times, 5. sept. 1958.
2) Kanada framfylgir 12 mílna fiskveiðilandhelgi gagnvart
þarlendum fiskimönnum, en ekki erlendum rikjum. Sjá: Canadi-
an Comments on the International Law Commissions Final Re-
port on the Law of the Sea, letter of Sept. 10. 1957. U.N.Doc.
A/'CONF. 13/5. at 5, 6—7, (1957).
Tímarit lögfrœöinga
133