Tímarit lögfræðinga - 01.07.1978, Page 37
Sá fyrirvari er gerður varðandi vistun á hæli, að hún getur ekki staðið
lengur en til loka refsitímans.
c) Breytingar á skilorði. Dómsmálaráðherra tekur allar ákvarðanir
um lengd reynslutíma og beitingu hinna sérstöku skilyrða, sbr. 3. mgr.
41. gr. hgl. Hann getur vegna breyttra ástæðna fellt skilyrði niður
að nokkru leyti eða öllu, breytt þeim og gefið fyrirmæli um ný skilyrði
innan marka 2. mgr. 41. gr., sbr. greinargerð. Hér er því um mjög
sveigjanlega heimild að ræða, sbr. að sínu leyti 58. gr. hgl. um skilorðs-
dóma. Með þessu er unnt að laga úrræðin eftir högum hvers aðila um
si'gf, viðbrögðum hans og aðstöðu allri á reynslutímanum. Fara verður
þó varlega í að setja ný skilyrði, nema um þeim mun brýnni ástæður
sé að tefla. Sú leið kann þó að vera aðila hagfelldari, ef hann með því
móti sleppur við aðrar afleiðingar skilorðsrofa, sbr. 2. mgr. 42. gr. hgl.
3) Skilorðsrof og afleiðingar þeirra. Ákvæði 1. og 2. mgr. 42. gr.
hgl. fjalla um skilorðsrof og hvernig við þeim skuli bregðast. Verður
að greina milli þess, hvort rofið er almenna skilyrðið (nýtt brot) eða
sérstöku skilyrðin. Séu skilorðsrof fólgin í nýju broti, skal varðandi
ákvörðunaraðila greina á milli ótvíræðra brota á alm. hgl. og annarra
refsiverðra brota. Þessi síðari aðgreining á sér ekki hliðstæðu annars
staðar á Norðurlöndum. Það er nýmæli hér á landi að ætla dómstólum
nokkurn hlut að ákvörðun um afleiðingar skilorðsrofa. I reynd munu
það þó verða fremur fá tilvik, sem koma til úrlausnar dómstóla.
a) Rof á almenna skilyrðinu. Ef brot varðar við almenn hegningarlög
og telst ótvírætt, tekur dómsmálaráðherra ákvörðun um framhald máls-
ins, sbr. 2. mgr. 42. gr. Ráðherra hefur ýmis úrræði um að velja önnur
en það að láta hinn brotlega afplána eftirstöðvar refsivistar. Hann get-
ur breytt skilyrðum reynslulausnar, m.a. lengt reynslutíma og/eða
umsjónartíma allt að lögmæltu hámarki. Hann getur sett ný skilyrði
skv. 2. mgr. 41. gr., sem aðila voru ekki sett í upphafi. Með ótvíræðu
broti er átt við háttsemi, sem aðili játar að hafa framið, eða óyggjandi
gögn benda til, að hann hafi framið, svo sem þegar hann er staðinn að
verki, sjá greinargerð. Ákvörðun um, að aðili taki út eftirstöðvar refs-
ingar, tekur ekki gildi, fyrr en gæsluvarðhaldi lýkur vegna hins nýja
brots.
Ef um annars konar afbrot er að ræða, þ.e. ef áðurgreindum tveimur
skilyrðum er ekki fullnægt, er ekki unnt á þessu stigi að kveða á um
afleiðingar skilorðsrofa, heldur verður að bíða úrlausnar dómstóla um
refsingu, sjá 1. mgr. 42. gr. Er við það miðað, að réttarrannsókn sé
hafin fyrir Iok reynslutíma. Dómstóll, sem um málið fjallar, ákveður
síðan refsingu í einu lagi fyrir brot það, sem nú er dæmt um, með hlið-
31