Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 12
réttmæta ástæðu til að draga það í efa. Sjálfstæðir og hlutlausir dómstólar eru
ein meginforsendan fyrir því að þeir njóti trausts. Sjálfstæði dómsvaldsins þarf
að skilgreina nánar, en um það verður betur fjallað í kafla 4 og um hlutleysið í
kafla 5.
Samkvæmt grundvallarreglum og kröfum réttarríkisins verður einnig að
gæta þess að allir njóti jafnræðis í lagalegu tilliti. Jafnræði verður að vera til
staðar, bæði samkvæmt lögum og fyrir dómstólum. I jafnræðisreglunni felst að
dómstólar gæti samræmis við meðferð og úrlausnir mála. Þessari reglu er ætlað
að tryggja að sama regla gildi um alla sem eins er ástatt um. Tilgangurinn með
reglunni um að dónta þurfi að rökstyðja er meðal annars sá að þannig verði unnt
að sjá hvemig niðurstaðan hefur verið fengin, að lög hafi ráðið henni og að
óhlutdrægni og jafnræðis hafi verið gætt.5 Rökstuðningnum er því meðal annars
ætlað að koma í veg fyrir að dómsúrlausnir verði byggðar á geðþóttaákvörð-
unum dómarans. Reglur um meðferð mála fyrir dómstólum eiga að vera
bundnar í lögum. Meðferð dómsntála á því heldur ekki að fara að geðþótta
dómara. Slíkar reglur verða að tryggja réttláta málsmeðferð fyrir dómi.
Lög og dómstólar réttarríkisins hafa sameiginlega það meginhlutverk að
vemda borgarana og tryggja jafnræði þeirra og annarra sem réttinda njóta.
Dómstólamir fara jafnframt með það hlutverk að tryggja réttaröryggið eins og
áður greinir. Þar sem úrlausnir dómstóla í hverju máli eru þar að auki endan-
legar um deiluna, sem þar hefur verið uppi, er enn eitt meginhlutverk dómstól-
anna að setja niður deilur og tryggja þar með frið í samfélaginu. Þetta hlutverk
hefur lengi verið í höndum þeirra sem með dómsvaldið hafa farið, sem eflaust
má telja upprunalegasta hlutverk dómsvaldsins. Nútíma skilgreiningar á hlut-
verki dómstólanna í réttarríkinu, kenningar um þrígreiningu ríkisvaldsins og
kröfur um sjálfstæða dómstóla komu til löngu síðar.
Tilgangurinn með hugmyndinni að réttarríkinu er einkum sá að tryggja
friðhelgi einstaklingsins svo og almennt réttaröryggi og frið í þjóðfélaginu.
Þjóðfélagsskipanin á að byggjast á lögum. Eitt meginhlutverk dómstóla er að
tryggja, þegar það á við, að virtar séu leikreglur réttarríkisins en dómstólum ber
að leysa úr deilum, sem spretta af réttarágreiningi, af hlutleysi á grundvelli
réttarreglna. Aðgerðir ríkisvaldsins verða að byggjast á lögum og því er lög-
unum ætlað að koma í veg fyrir ofríki ríkisvaldsins. Vörn einstaklingsins er
lögin sem vemda hann gegn ofríki og ógnarstjóm. Ef lögin eru ekki virt eiga
einstaklingar og aðrir þess kost að leita til dómstóla til að ná fram rétti sínum.
Forsenda fyrir því að um réttarríki sé að ræða er að óháður og óhlutdrægur
dómstóll skeri úr um réttindi borgaranna. Að öðrum kosti er þessi réttur ekki
annað en orðin tóm. Dómstólar verða jafnframt að njóta trausts, ella er hætta á
að þeim verði ókleift að tryggja réttaröryggi og frið og þar með uppfylla þeir
ekki meginskyldurnar sem á þeim hvfla. Þannig verður stjórnarfyrirkomulag og
5 Reglan um að dóma skuli rökstyðja kemur fram í 1. mgr. f-liðar 114. gr. laga um meðferð
einkamála nr. 91/1991 og 1. mgr. 135. gr. laga um meðlerð opinberra mála nr. 19/1991.
470