Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Side 16

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Side 16
óháða dómstóla að ákvörðunarvald um svokölluð innri málefni dómstóla sé að meira eða minna leyti í höndum ráðherra. Bent hafi verið á að ráðherra gæti með afskiptum sínum af beiðnum um fjárveitingar, starfsmannahaldi og veitingu dóm- araembætta haft talsverð áhrif á starfsemi dómstólanna. Því sé unnt að draga í efa að dómstólar séu fyllilega sjálfstæðir og óháðir þessum þáttum ríkisvaldsins. Við mótun frumvarpsins hafi verið tekið tillit til þessarar umræðu. Einnig hafi verið hugað sérstaklega að þróun sambærilegrar löggjafar í öðrum ríkjum Evrópu. Þjóð- réttarlegar skuldbindingar Islands, einkum hvað varði mannréttindi og viðskipti, valdi því að sú viðmiðun sé ekki aðeins eðlileg heldur í sumum tilvikum einnig óhjákvæmileg. Við mótun löggjafar um dómstólana verði að hafa í huga að þeim beri að hafa eftirlit með hinum tveimur þáttum ríkisvaldsins, löggjafarvaldinu annars vegar og framkvæmdarvaldinu hins vegar. Þeirri stefnu hafi því verið fylgt við samningu frumvarpsins að tryggja verði í sem ríkustum mæli að dómstólarnir verði óháðir hinum tveimur þáttum ríkisvaldsins sem þeir hafi eftirlit með.10 Með alþjóðlegum reglum hefur í auknum mæli verið lögð áhersla á að ráðstafanir verði gerðar til að tryggja sjálfstæði dómstólanna. A sjöundu ráðsteínu Sameinuðu þjóðanna í Mílanó 26. ágúst til 6. september 1985, um vamir gegn glæpum og meðferð afbrotamanna, vom samþykktar gmndvallarreglur um sjálf- stæði dómstóla, staðfestar á allsherjarþinginu 29. nóvember 1985. í 1. lið regln- anna segir að sjálfstæði dómstóla skuli tryggt af ríkisvaldinu og varið af stjómar- skrá eða lögum lands. Öllum stofnunum ríkisvaldsins og öðrum stofnunum sé skylt að virða sjálfstæði dómstóla." Einnig er tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins No. R (94) 12 til aðildarríkja þess um sjálfstæði, skilvirkni og hlutverk dómara (On the inde- pendence, efficiency and role of judges) frá 13. október 1994 ætlað að tryggja og efla sjálfstæði dómstólanna. I tilmælunum segir að mælst sé til þess að ríkisstjórnir aðildarríkja geri allt sem nauðsynlegt sé, og styrki það sem þegar hafi verið gert, til að vinna störfum ein- stakra dómara og dómskerfisins í heild framgang og treysta sjálfstæði þeirra og skilvirkni. Vísað er meðal annars til vilja til að stuðla að sjálfstæði dómara til að treysta réttaröryggi í lýðræðisríkjum og að nauðsynlegt sé að treysta stöðu og vald dómara til að skapa skilvirkt og réttlátt réttarkerfi. Gera beri tilteknar ráðstafanir, sem settar eru fram í reglum, sem eiga að tryggja sjálfstæðið. Þar er meðal annars sett fram sú regla að ríkisstjórn og löggjafarvaldi beri að tryggja að dómarar séu óháðir og að ekki sé stigið neitt það skref sem stefnt geti því í hættu.12 í kröfunni um sjálfstæði dóntsvaldsins felst að dómarar megi ekki lúta boðvaldi annarra. Þetta kemur meðal annars fram í 1. mgr. 24. gr. laga um dómstóla. Þar segir að dómarar séu sjálfstæðir í dómstörfum og leysi þau af 10 Alþingistíðindi A, 122. löggjafarþing, þskj. 176, 176. mál. 11 Reglumar eru birtar í Tímariti lögfræðinga, 1. hefti 1993, bls. 58-60. 12 Sjá heimasíðu Evrópuráðsins: www.coe.int R (94) 12 (8. mars 2005). 474
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.