Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 20
pólitískra álitaefna ætti þess vegna heldur ekki að koma fram í dómi. Stundum
eru úrlausnarefnin þó þannig að ekki verður hjá því komist að taka afstöðu til
álitaefna sem snúast um ágreiningsefni sem ættu betur heima á vettvangi
stjómmálanna. Þar er dómaranum vissulega vandi á höndum. Hann kann í þeim
tilvikum að eiga í erfiðleikum með að sýna fram á að hlutleysis hafi verið gætt
við dómsúrlausnina. Þar sem slík ágreiningsefni eru æ oftar borin undir dóm-
stóla þarf óhjákvæmilega að gera auknar kröfur um óvilhalla dóniara. Þetta þarf
að hafa í huga þegar skilgreint er hvað átt er við með því að gæta þurfi að hlut-
leysi dómsvaldsins.
Gæti dómarar ekki fyllsta hlutleysis við úrlausnir mála er dómsvaldið ófært
um að tryggja réttaröryggið með viðunandi hætti. Með því er einnig grafið
undan trausti sem dómstólamir verða að njóta. Með kröfunni um sterkara og
sjálfstæðara dómsvald er enn brýnna en ella að gæta að reglunni um hlutleysi
dómsvaldsins.
6. DÓMSVALDIÐ OG NÚTÍMADÓMSTÓLAR
Dómsvaldið er ekki sérstaklega skilgreint í stjórnarskránni. I einstökum
ákvæðum hennar og í réttarfarslögum og lögum um dómstóla kemur hins vegar
fram hvert hlutverk dómstólanna er, og má af þessum réttarheimildum ráða til
hvers dómsvaldið tekur. Dómsvaldið er enn fremur að hluta til unnt að skil-
greina út frá valdsviði annarra æðstu stofnana þjóðfélagsins, en hverjum hinna
þriggja þátta ríkisvaldsins er ætlað ákveðið hlutverk. Ekki er gert ráð fyrir að
hver þeirra fari inn á valdsvið hinna þótt hverjum þeirra sé ætlað að takmarka
vald hinna eða hafa eftirlit með þeim eins og hér að framan er lýst. Það veldur
því þó að skipting rrkisvaldsins í þrjá aðskilda þætti er ekki eins greinileg og ætla
mætti og æskilegt væri ef aðeins væri stefnt að því að hafa reglumar um hlutverk
og valdsvið dómstóla sem skýrastar og einfaldastar. Þetta gerir skilgreiningar á
dómsvaldinu erfiðari og flóknari en ella.
Starfsemi dómstóla og þróun dómsvaldsins hefur enn fremur oft verið háð
þjóðfélagsaðstæðum hverju sinni.14 Þess vegna geta kröfur sem gerðar eru til
dómstólanna verið breytilegar, enda er eðlilegt að þær séu háðar aðstæðum og
þróun á hverjum stað og tíma. Örar breytingar í þjóðfélaginu geta kallað á
breytt hlutverk dómsvaldsins þrátt fyrir að lagaákvæðin hafi lítið eða ekkert
breyst, og án þess að grundvöllurinn eða hugmyndafræðin, sem starfsemi dóm-
stólanna er byggð á, hafi í raun breyst. Skilgreiningar á hlutverki dómstólanna
í réttarríkinu getur því þurft að endurskoða þar sem tekið er tillit til eðlilegrar
þróunar dómsvaldsins og aðlögunar þess í nútímasamfélagi.
Slíkar breytingar geta t.d. valdið því að dómsvaldið teygi sig of langt og
fari með því út fyrir valdsvið sitt og inn á valdsvið löggjafar- eða fram-
kvæmdarvaldsins. Það er auðvitað ekki æskilegt og ekki til þess ætlast, enda er
14 í greinum Hreins Loftssonar: „Efling dómsvalds'* og „Leitin að réttlátari dómstólum" eru
fróðleg og greinargóð yfirlit yfir þróun dómsvaldsins í Evrópu og Bandaríkjum Norður-Ameríku.
478