Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 24

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 24
valdinu og meðferð þess í réttarríkinu. Með því væri ef til vill unnt að varpa skýrara ljósi á það hvers þurfi að gæta til að varðveita hlutleysi dómsvaldsins og tryggja betur en ella að dómstólar fari ekki út fyrir valdheimildimar. 7. LÖGFRÆÐILEGAR ÚRLAUSNIR Hinar hefðbundnu aðferðir lögfræðinnar eru þær að leita að og finna við- eigandi réttarheimildir sem réttilega verður beitt á það sem um ræðir samkvæmt almennum viðmiðunum og í samræmi við hefðbundnar lögskýringar, laga- túlkanir og reglur réttarheimildafræðanna. Með réttum aðferðum ætti því að vera unnt að komast að lögfræðilega réttri niðurstöðu. Við úrlausn dómsmála reynir að nokkru leyti á þessa aðferðafræði. Þar þarf að beita viðeigandi lagareglum og öðrum réttarheimildum á tilvikið og máls- atvikin, sem um ræðir í hverju máli, í samræmi við hinar viðurkenndu lög- fræðilegu aðferðir. Mál þarf að dæma eftir lögum á grundvelli þess sem liggur fyrir í því. Málsatvikin og það sem fram hefur komið þarf að meta og setja í lögfræðilegt og rökrétt samhengi. Akveða þarf hver málsatvik skipti máli að lögum og á hvern hátt. Það sem fram hefur komið þarf að meta í heild þar sem greind eru aðalatriði frá aukaatriðum. Greina þarf hver tengsl eru milli þess sem sett er fram og draga þarf rökréttar ályktanir af því. Beita þarf rökfærslu sem sýnir að lög hafi leitt til niðurstöðunnar. Rökfærslan og sú vinna sem þarna liggur að baki er ekki endilega aðeins lögfræðilegs eðlis. Það getur sérstaklega átt við þegar beita þarf mati. Sönn- unarmat þarf t.d. ekki endilega að vera mjög lögfræðilegt. Þar þarf venjulega að beita rökhugsun sem byggð er á þekkingu á málavöxtum og innsæi í mannlega hegðun. Við sönnunarmat þarf t.d. að kanna hvort skýrslugefandi hefur ástæðu til að segja ósatt og hverjar ástæðurnar eru fyrir því. Kanna þarf hve traust frásögnin er, meðal annars hvað hafi komið fram sem bendi til að henni megi treysta og hvort annað hafi komið fram sem annað hvort styður hana eða dregur úr trúverðugleika hennar. Þegar fram kemur misræmi í gögnum þarf að athuga hvort til eru haldbærar skýringar á því og hverjar þær eru. Hin lögfræðilega úrlausn ræðst meðal annars af því hvernig þessi atriði eru meðhöndluð og metin. Um þau gilda ekki endilega einhlítar viðmiðanir og ekki er alltaf á það að treysta að úr þeim verði leyst ineð hinum hefðbundnu aðferðum lögfræð- innar. Þar að auki eru lög oft almennt orðuð og veita því dómstólum svigrúm til túlkana, eins og fram kemur í kaflanum hér á undan og heimildum sem þar er vísað til. Af þessum sökum, meðal annars, er ekki á það að treysta að dóms- úrlausnir séu fyrirsjáanlegar. Akvörðun refsinga getur einnig verið háð mjög vandasömu mati sem lögfræðin á ekki endilega svör við. Meta þatf hversu mikilvægt það er sem brotið hefur beinst gegn, hversu yfirgripsmiklu tjóni það hefur valdið, hversu mikil hætta var búin af verkinu og hversu styrkur og einbeittur vilji brota- mannsins hefur verið. Við ákvörðun refsinga getur ráðið úrslitum hvernig þessi atriði eru metin. Auk þess þarf oft að taka tillit til margra ólíkra þátta sem geta 482
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.