Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 26

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 26
dómenda sýna glöggt hvernig málið hefur verið metið með ólíkum hætti, annars vegar af meirihluta dómenda og hins vegar af minnihlutanum. I málinu krafðist sóknaraðili þess að sér yrði heimilað að fá dóttur sína og varnaraðila tekna úr umráðum vamaraðila með beinni aðfarargerð en sóknaraðili fór með forsjá hennar. Meirihluti dómenda leggur mesta áherslu á að leysa málið út frá þeirri viðmiðun að sóknaraðili færi með forsjá stúlkunnar, en það hefði verið talið stúlkunni fyrir bestu og engin gögn hefðu verið lögð fram í málinu sem breyttu þeirri niðurstöðu. Ekki hefðu verið færð fram rök sem veittu tilefni til að varhugavert yrði talið að gerðin næði fram að ganga. Minnihlutinn áleit hins vegar að leysa þyrfti úr málinu meðal annars út frá þeirri lagareglu að taka bæri tillit til afstöðu og vilja stúlkunnar, sem var á 16. aldursári, en hún hafði ítrekað lýst þeirri afstöðu að hún vildi fremur búa hjá vamaraðila en sóknaraðila. Lagareglumar sem þarna er um ræða eru alls ekki skýrar eins og ráða má af dóminum. Þess vegna getur afstaða og viðhorf dómenda til þess sem leysa þarf úr skipt meginmáli fyrir niðurstöðuna. Það á sérstaklega við þegar ekki er við neinar almennar viðmiðanir að styðjast. Því má hins vegar halda fram að sératkvæðið endurspegli víðsýni dómaranna sem að því stóðu, enda virðast þeir hafa talið að fleira skipti máli en það sem meirihluti dómenda taldi að ráða ætti úrslitum. Það sem fram kemur í þessum dómi og samanburður á því og sér- álilinu er í öllu falli gott dæmi um það að niðurstaðan ráðist ekki af lagareglum eingöngu heldur geti viðhorf dómenda til margvíslegra atriða í málinu, og mat þeirra á þeim, skipt mjög miklu máli fyrir niðurstöðuna. Samsetning réttarins er auk þess sérstaklega þýðingarmikil þegar hin ólíku viðhorf ráða jafn miklu og hér hefur orðið raunin um hina lögfræðilegu úrlausn. Dómurinn er einn af mörgum slíkum þar sem lagareglurnar einar ráða ekki niðurstöðunni enda eru þær ófærar um það. Dómendur leiða niðurstöðuna af lagareglum sem þó er að miklu leyti háð ákvörðunum þeirra og mati. I dóminum gerir meirihluti dóm- enda það á annan hátt en minnihlutinn. Mikilvægt er að hafa í huga að leysa þarf úr dómsmálum á grundvelli lög- fræðilegrar þekkingar, menntunar og reynslu þess dómara eða þeirra dómara sem leysa úr dómsmáli hverju sinni. Einnig þarf dómari að leysa úr máli af innsæi og þekkingu á mannlegri hegðun, í samræmi við heilbrigða skynsemi, rökhugsun og eðlilega dómgreind. Fram þarf að koma að forsendur styðji niður- stöðuna og að forsendurnar séu í samræmi við þá þekkingu sem er fyrir hendi á hverjum tíma. Þess þarf jafnframt að gæta að rökleiðslan brjóti ekki gegn almennum lögmálum um rökrétta hugsun. Þess vegna þarf rökfærslan að vera skýr, skiljanleg og skilmerkileg, ella þjónar hún ekki þeim tilgangi sem henni er ætlað. Ekki má láta sjónarmið, sem byggð eru á geðþótta, persónulegum skoðunum, tilfinningum, fordómum, hugsanavillum, hlutdrægni eða sérvisku, hafa áhrif á úrlausnina. Dómarinn þarf að geta greint á milli persónulegra skoðana og eigin afstöðu annars vegar og ahnennra viðmiðana hins vegar. Hæfileikar dómarans til þessa velta ekki á lögfræðiþekkingunni einni. 484
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.