Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Side 28

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Side 28
Með því að stefna að sterkara dómsvaldi aukast líkurnar á meira réttar- öryggi. Því markmiði verður þó ekki náð nema réttilega verði með dómsvaldið farið. Til þess að tryggja það þarf meðal annars að standa vel að því að velja dónrara í embætti. Aðferðir sem notaðar eru til þess ættu að miða að því að hæfasti einstaklingurinn, sem völ er á hverju sinni, verði valinn til að gegna dómarastöðu, en það er í samræmi við almennar reglur stjórnsýslunnar. Megin- markmiðið hlýtur því að vera að vanda valið. Þekking á dómarastarfinu, og þeim faglegu kröfum sem gera verður til þeirra sem fara með dómstörf, er mikilvæg forsenda fyrir því að unnt verði að standa vel að slíku mati. Einnig er mikilvægt að tryggja hlutleysi við val á dómara í embætti. Ekkert annað má hafa áhrif en faglegur mælikvarði á hæfileika þeirra sem sækja um dómarastöður þegar valinn er hæfasti umsækjandinn. Lög eru oft sett með ákveðna hagsmuni að leiðarljósi, væntanlega almannahagsmuni en ekki sér- hagsmuni. Þess vegna ætti dómari hvorki að vera talsmaður einhverra sér- hagsmuna né vera því marki brenndur að hann geti verið það, enda myndi það skapa tortryggni og vekja efasemdir um hlutleysi hans. Þetta eru veigamiklar ástæður fyrir því að dómari verður að vera nægilega aðgreindur og aðgreinan- legur frá pólitískum valdhöfum og hagsmunaaðilum. Það breytir þó engu um þau takmörk senr dómstólar verða að sæta, eins og aðrir þættir ríkisvaldsins. Takmarkanimar felast í því að þeir eru bundnir af lögum og verða að byggja ákvarðanir sínar á þeim og viðeigandi lagaheimildum. Þess vegna er einmitt mikilvægt að til dómarastarfa veljist þeir sem hafa mikla þekkingu á lögum, hæfileika til að beita þeim við úrlausnarefnin sem dómstólarnir fá í hendur og færni til að gegna dómarastarfinu af fagmennsku og hlutleysi.28 Aukin áhersla hefur verið lögð á að bæta aðferðir við mat á hæfni um- sækjenda um dómarastöður. Þetta var gert með lögum nr. 92/1989 sem tóku gildi 1. júlí 1992. I 2. mgr. 5. gr. laganna voru fyrirmæli um að dómsmála- ráðherra skipaði dómnefnd sem skyldi fjalla um hæfni umsækjenda um embætti héraðsdómara. Um lagaákvæðið segir í athugasemdum sem fylgdu laga- frumvarpinu að megintilgangur þess sé að styrkja sjálfstæði dómstólanna og auka traust almennings á því að dómarar séu óháðir handhöfum fram- kvæmdarvaldsins. Ekki sé að efa að tilvist umsagnarnefndarinnar verði auk þess hvatning fyrir lögfræðinga, sem hyggi á starfsferil sem dómara, til að afla sér framhaldsmenntunar og leggja stund á fræðistörf á sviði lögfræði.29 Laga- ákvæðið hefur verið fellt niður, en sambærilegt ákvæði er í 3. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. í athugasemdum með frumvarpinu sem við eiga um núgildandi lagaákvæði segir að fyrirmælin um dómnefnd til að fjalla um hæfni 28 Ditlev Tamm segir á bls. 91: „Domstolsarbejde er fbrst og fremmest professionelt arbejde, der kræver den tekniske indsigt, som gode jurister har“. 29 Alþingistíðindi A, 1988-1989, þskj. 204, bls. 1125. 486
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.