Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 30

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 30
Ýmsar alþjóðlegar reglur hafa verið settar til að tryggja að ákvarðanir um skipan dómara og framgang í dómarastarfi verði í höndum hlutlauss aðila. Lögð er þar megináhersla á að faglegt mat hins hlutlausa aðila verði látið ráða slíkum niðurstöðum. Evrópusamtök dómara hafa sett reglur um skipun dómara í embætti, Judges' Charter in Europe, frá árinu 1992, með breytingu frá árinu 1996. í 4. gr. reglnanna segir að val á dómara skuli eingöngu byggjast á hlutlægum sjónarmiðum sem tryggi faglega hæfni hans. (The selection of Judges must be based exclusively on objective criteria designed to ensure professional competence). Oháð nefnd, skipuð fulltrúum dómsvaldsins, tilnefni dómara. Utiloka beri annars konar áhrif og þá sérstaklega flokkspólitíska hagsmuni (political influence). í 5. gr. segir að hin óháða nefnd skuli beita sömu meginreglum varðandi hlutleysi, faglega hæfni og sjálfstæði þegar teknar eru ákvarðanir um starfsframa dómara og þeim sem gildi um val hans.32 í tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins til aðildarríkja þess, R (94) 12, um sjálfstæði, skilvirkni og hlutverk dómara, sem hér að framan er vitnað til, koma sömu sjónarmið fram. 1 I. kafla eru settar fram grundvallarreglur um sjálfstæði dómara. I c-lið 2. gr. þess kafla segir meðal annars að allar ákvarðanir, sem varða embættisferil dómara, beri að byggja á hlutlægum sjónarmiðum (objective criteria). Verðleikar skuli ráða vali á þeim í embætti og starfsferli, þar sem miða skuli við hæfileika til að gegna starfinu, heiðarleika, fæmi og afköst. Akvörðunarvald um val við veitingu dómaraembætta og starfsferil dómara skuli vera óháð ríkisstjórn og stjórnvöldum. Til að vemda sjálfstæði þess valdhafa sem tekur ákvörðun ættu reglur að tryggja að t.d. dómstólar velji þá sem þar eigi sæti.33 A 39. þingi Alþjóðasambands dómara í Amsterdam 22.-26. september 1996 var fjallað um ráðningu og þjálfun dómara í nútíma samfélagi. Þátttak- endur voru sammála um að það væri grundvallaratriði að afnema algerlega öll afskipti pólitískra aðila af vali eða framgangi dómara. Þetta væri mikilvægt, bæði til þess að tryggja hlutleysi einstakra dómara og til þess að tryggja sjálf- stæði dómstólanna. Brýnt væri að gæta algerlega hlutlægra viðmiðana við val á dómara til að tryggja að hæfasta fólkið verði valið til dómarastarfa.34 I Danmörku var réttarfarslögum, „retsplejelov", breytt með lögum nr. 402 frá 26. júní 1998 sem tóku gildi I. júlí 1999. Samkvæmt núgildandi 43. gr. dönsku réttarfarslaganna ber að skipa í dómarastöður eftir heildarmati á hæfni um- sækjanda til að gegna stöðunni. I lagagreininni segir að leggja skuli höfuð- áherslu á lögfræðilega þekkingu og persónulega eiginleika umsækjanda. Einnig skuli við matið litið til þess hvort umsækjandi hafi fjölbreytilegan lögfræði- legan starfsferil og að auki skuli tekið tillit til þess að við dómstólinn skuli vera 32 Reglurnar eru birtar í „Bilag til Domstolsudvalgets betænkning". bls. 51-55. 33 Sjá neðanmálsgrein 12. 34 Dómarafélag íslands, bls. 10. 488
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.