Ægir - 01.03.1999, Síða 18
Línukerfin ogfœravindurnarfrá DNG Sjóvélum:
Saman í einni
krókasamstæðu í
framtíðinni
Línukerfin eru í mestrí framþróun
hjá okkur um þessar mundir. Þau
fœrast sífellt í meiri átt til sjálfvirkni
og þar meö hagkvœmni, þannig að
kaupendurnir nái enn meirí arðsemi
lit úr fjárfestingunni. Við setjum okk-
ur það mark að bjóða einfóld kerfi og
hagkvœm en jafnframt fullkomin
fyrír minni báta. Okkar línukerfi eru
hin minnstu og þau einu sem við vit-
um að tveir menn geti atinað," segir
Kristján E. Jóhannesson, fram-
kvœmdastjóri hjá DNG-Sjóvélum.
Fyrirtœkið framleiðir og selur þekktar
fœravindur og línukerfi fyrir báta-
flotatm en Kristján segir að við þróun
á línukerfunum nýti fyrirtœkið sér þá
tœkniframfór sem orðið hefur í smíði
fœravinda.
„Við sjáum búnaðinn þróast yfir í
eina krókasamstæðu þar sem rnenn
geta valið hvort veitt er á vindu eða
línu. Línukerfin hjá okkur hafa verið
notuð með góðum árangri í smábát-
um allt niður í 25-28 fet að stærð en
sérstaða íslenska markaðarins er raun-
ar sú hversu litlir línubátarnir eru hér-
lendis. Við erum að selja kerfin í mun
stærri báta á öðrum markaðssvæðum
en það er einkennandi hérlendis
hversu gífurleg afkastageta er orðin á
smábátunum," segir Kristján.
Kostnaður við veiðibúnað er eðli-
lega það atriði sem kaupendur staldra
fyrst við. Kristján segir að DNG Sjóvél-
ar kappkosti að bjóða sem hagkvæm-
asta verðið.
„Við teljum okkur bjóða ódýrustu
lausnirnar fyrir smábátana og reynum
sífellt að efla tæknina við framleiðslu
og þróun þannig að búnaðurinn verði
enn ódýrari. Það má líka benda á að
einhver skýring hlýtur að vera á því að
þótt margir smábátarnir séu reknir af
mikilli hagkvæmni, þá eru þeir
bundnir við bryggju stóran hluta árs-
ins. Það eru ekki mörg skip sem þola
þetta og ég tel okkur eiga hlut að máli
og hafa stuðlað að mikilli framþróun í
veiðitækni," segir Kristján.
Á sjávarútvegssýningunni í Kópa-
vogi í haust verða DNG Sjóvélar með
sýningarbás og þar segir Kristján að
verði kynntar ýmsar nýjungar sem
ekki er tímabært enn að opinbera.
„Já, við ætlum að koma fram með
nýjungar á sýningunni og erum með
þær í undirbúningi núna. Við leggjum
mikið upp úr því að kynna nýjungar
okkar fyrst hér heima, enda er ísland
okkar þróunar- og uppbyggingarmark-
aður," segir Kristján.
Línukerfi frá DNG Sjóvélum. í þróun á línukerfunum er byggt á þekkingu sem byggst hefur upp í framleiðslu á fœravindum
fyrirtcekisins.
18 ÆGJIR