Ægir - 01.03.1999, Síða 29
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Icedan hefur síðan 1993 sett mikið
upp af seiðaskiljum fyrir rækjutroll. Til
að byrja með voru skiljurnar eingöngu
úr stáli en nú hafa plastskiljurnar tekið
yfir. Plastskiljan vegur 20 kg á móti
140 kg stálskilju og fer plastskiljan
mun betur með netið sem er utan um
skiljuna. í staðinn fyrir 40 kúlur á stál-
skiljunni þá eru einungis 2 kúlur á
plastskiljunni.
„Thyboron trollhleramir frá okkur
fyrir rækjutroll eru vel þekktir hér á ís-
landi, sem og annars staðar. Nokkur
skip nota Thyboron hlerana við fiski-
troll og má þar nefna Ófeig VE, sem
hefur skilað frábæmm árangri, en
einnig Orra ÍS sem notaði hlerana við
grálúðuveiðar nú í janúar og febrúar
með mjög góðum árangri. Þá hefur
Thyboron hafið framleiðslu á nýrri
gerð flottrollshlera sem hafa notið
mikilla vinsælda á írlandi, Hollandi,
Rússlandi og í Danmörku. Innan
skamms munum við hjá Icedan hefja
kynningu á nýju flottrollshlerunum
hér á íslandi," segir Þorsteinn.
J. HINRIKSSON ehf.
Súðarvogi 4, Pósthólf 4154,124 Reykjavík,
Sími: 588 6677, Bréfsími: 568 9007, Netfang: info@poly-ice.is
Heimasíða: www.poly-ice.is
„Framleiðendur togblera í áratugi“
iÆi) jjJíaJiJjjJ jjj.=íD
AGIR 29