Ægir - 01.03.1999, Blaðsíða 30
Á netaverkstæði Seifs er verið að setja upp troll fyrir veiðar á Flœmska hattinum.
Nótaefni frá Asíu
að ryðja sér til rúms
Guðmundur Sveinsson við nóta-
saumavélina.
Nótasaumavél vinnur
á við 10 menn
„Ég fékk fyrir níu árum fyrstu
nótasaumavélina sem kom til lands-
ins og hún vinnur á við 10 menn. En
það er rétt að við mörg handtökin í
netagerðinni verður ekki
auðveldlega við komið vélrænni
tækni,“ segir Guðmundur Sveinsson,
eigandi Netagerðar Guðmundar
Sveinssonar í Reykjavík.
Guðmundur hefur unnið við
netagerð hátt í fimm áratugi - lærði
á sínum tíma til hennar á Siglufirði
þegar síldarnæturnar voru alls ráð-
andi. I dag er þjónustan við nóta-
skipin ráðandi í starfseminni hjá
Guðmundi og hann notar eingöngu
efni í næturnar frá framleiðendum í
Noregi sem hann segir fyrsta flokks.
„Ég vil frekar nota norska efnið
vegna þess að ég tel ekkert annað
jafn sterkt. Jafnvel þó að það sé dýr-
ara þá kemur á móti að sjaldnar þarf
að skipta um og þetta þarf að taka
með í reikninginn," segir Guð-
mundur.
Netaverkstæðum í Reykavík hef-
ur farið fækkandi og það segir Guð-
mundur stafa fyrst og fremst af því
að færri nótaskip landi þar afia sín-
um en áður. Til að mynda hafi að-
eins eitt skip haft Reykjavík sem
fasta löndunarhöfn nú á loðnuver-
tíðinni.
W^etta eru skyldir
JT þœttir en saint
ólíkir. Við getum sagt
að við rekum eina al-
liliða netaverkstœðið
sem eftir er í Reykja-
vík, efvið undanskilj-
um Hampiðjuna,"
segir Rafn Haralds- ^afn Haraldsson
soti, framkvcemda- 1,1 a SL'fL^'f
stjóri Seifs ehf. í Reykjavík en Seifur
liefur að meginstarfsemi útflutning á
fiskafurðum og innflutning á veiðar-
fœrabúnaði og í tengslum við þann
Jtátt rekur fyrirtœkið fullkomið neta-
verkstœði. Seifur var stofnað fyrir
réttuin 30 árum.
Rafn segir að efni til nótauppsetn-
inga og -viðgerða komi fyrst og fremst
frá Asíulöndum en ekki Noregi, eins
og var áður. Hann segir norska efnið
mun dýrara en efnið frá Asíu.
„Verðmunurinn getur verið hátt í
helmingur og munar um minna þegar
uppsett nót kostar á bilinu 20-35 millj-
ónir króna."
Margar útgerðir nótaskipa þurfa á
að halda bæði grunn- og djúpnót fyrir
loðnuveiðarnar og síðan síldarnót til
viðbótar. Miðað við verð á nýjum nót-
um er ekki óraunhæft að áætla að þær
geti kostað á bilinu 50-70 milljónir
króna.
„Jú, vissulega eru gríðarlegir fjár-
munir bundnir í veiðarfærum hjá
þessum útgerðum en góð veiðarfæri
skipta líka miklu máli."
Netaverkstæði Seifs hefur haft mikil
verkefni undanfarin ár í uppsetningu
og viðhaldi á rækjutrollum, bæði
vegna veiða hér á heimamiðum sem
og á Flæmska hattinum. Einnig hafa
verið talsverð verkefni í fiskitrollum og
snurvoðum.
„Við vorum t.d. að ljúka við tvö
troll fyrir togarann Hersi sem farið
verður með á Flæmingjagrunnið. Við
fylgjum því útgerðunum í þeim
verkefnum sem þær taka sér fyrir
hendur," segir Rafn Haraldsson hjá
Seifi ehf.
30 MIU