Ægir - 01.03.1999, Síða 32
Húsnœði Fjarðarnets á Seyðisfirði.
Fjarðarnet á afmælisári
Á næsta hausti fagnar Fjarðarnet á Seyðisfirði 15 ára afmæli og viðurkennir
Jóhann Hansson, stjórnarformaður fyrirtækisins og einn eigenda, að þrátt fyrir
ágæta stöðu fyrirtækisins í dag þá hafi skipst á skin og skúrir frá því það var
stofnað. Hann segir það geta orðið fyrirtækinu mikil lyftistöng ef keypt yrði
nótaveiðiskip til Seyðisfjarðar.
„Við lenturn í greiðslustöðvun árið 1994 en höfum náð okkur á strik síðan
þá. Við höfum yfir að ráða betra húsnæði en áður og það skiptir okkur miklu
máli,“ segir Jóhann.
Verkefni vantaði milli vertíða
Lengi vel háði það fyrirtækinu að hafa ekki föst verkefni milli loðnu- og
síldarvertíða en því betur hafi verkefnin smám saman aukist og alla jafna náist
að brúa bilið. „Það skiptir máli að hafa nægilega marga rnenn til að ráða við
verkefnin þegar þau koma upp, t.d. þegar skip þurfa á viðgerðum að halda
vegna þess að veiðarfærin hafa rifnað. Við njótum þess auðvitað oft að hingað
koma skip til löndunar hjá SR-Mjöli og sækja til okkar í viðgerðarþjónustu um
leið.“
Tangi hf. á Vopnafirði sækir netagerðarþjónustu til Fjarðarnets og sömu
leiðis segir Jóhann að fyrirtækið hafi unnið fyrir Samherja á Akureyri.
Lfppsetning á nýrri nót fyrir Samherja stendur einmitt yfir hjá Fjarðarneti þessa
dagana. Slíkt verkefni er hátt í tveggja mánaða vinna fyrir þá 10 menn sem
starfa hjá Fjarðarneti og sýnir það vel hve atvinnuskapandi nótaútgerðin er.
„Við erum lang mest í síldar- og loðnunótum en síðan önnumst við
trollviðgerðum eftir þörfum, þá sérstaklega fyrir togarann Gullver hér á
Seyðisfirði. En miðað við það sem við sjáum annars staðar þá er það
netaverkstæðunum mikils virði að hafa á sama stað öflugar útgerðir nótaskipa,"
segir Jóhann.
Togvinduframleiðsla
Vélaverkstæðis Sigurðar:
Aukin sókn á
erlenda markaði
„Við erum í ágætri sókn á erlenda
markaði með framleiðslu okkar. Við
fórum nú í fyrsta skipti á sjávarút-
vegssýninguna í Glasgow og sýndum
þar myndir af vindunum frá okkur
og sama gerðum við á sjávarútvegs-
sýningunni í Vigo á Spáni. Við höf-
urn viðskiptavini í Portúgal og á
Spáni og erum alls staðar að byggja
á sömu framleiðslu og við erum að
bjóða hér á heimamarkaði," segir
Sigurður Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Vélaverkstæðis Sigurðar, sem
um árabil hefur framleitt togvindur
fyrir skip og báta.
Vindur frá fyrirtækinu hafa farið
um borð í skip hjá útgerðarfyrir-
tækjum sem tengjast íslenskum út-
gerðum, t.d. hjá hinu þýska fyrirtæki
Samherjasamstæðunnar, DFFU. Sig-
urður segir fyrirtæki sitt því njóta út-
rásar íslenskra fyrirtækja á sjávarút-
vegssviðinu.
„Núna er verkefnastaða okkar
óvenju góð og við sjáum ekki annað
en svo verði næstu misserin. Við
höfum verið að selja töluvert af
vindum í dragnótabátana og síðan
kapal-, flot- og togvindur í togarana,
auk minni hjálparvinda," segir Sig-,
urður. Hann segir samkeppnina fyrst
og fremst við innflutning og mikil-
vægt sé að standast vel verðsaman-
burð.
„Vindurnar eru orðnar mjög þró-
aðar og breytast ekki stórvægilega
frá einu ári til annars. Fyrst og
fremst er um að ræða vindur í stærri
skip og fyrir stærri veiðarfæri. Dærni
um það eru 35 tonna vindur sem við
höfum verið að setja niður í stóru
togarana sem eru á úthafskarfaveið-
um með Gloríutrollin."
32 mm