Ægir - 01.03.1999, Síða 50
trollsveiða þannig að hægt er að nota
þá við botntrollsveiðar án þess að vera
á botninum.
Aukinn útflutningur
J. Hinriksson hefur rekið dótturfyrir-
tæki í Mexíkó um tveggja ára skeið og
framleitt þar um 200 toghlera fyrir
markaði í Suður-Ameríku og á Kyrra-
hafsströnd Bandaríkjanna. Frá íslandi
þjónar fyrirtækið sterkustu markaðs-
svæðunum, fyrst og fremst í Noregi,
Færeyjum, Bretlandseyjum og Þýska-
landi en alls hefur J. Hinriksson fram-
leitt um 8000 toghlera frá stofnun
fyrirtækisins. Atli Már segir að fyrir-
tækið bjóði 5 gerðir af toghlerum sem
framleiddir eru í þeim stærðum sem
henta hverju skipi fyrir sig.
„Við höfum sterka markaðshlut-
deild erlendis og eftir því sem við fest-
um okkur í sessi á fleiri mörkuðum, þá
verðum við betur í stakk búnir til að
taka á sveiflum í hinum ýmsu mörk-
uðum og aukum veltuna. Á síðasta ári
var rúmlega 30% söluaukning hjá fyr-
irtækinu, en tveir þriðju hlutar fram-
leiðslunnar hafa verið seldir erlendis
síðustu 10 ár.
Útrás íslensku sjávarútvegsfyrirtækj-
anna í verkefnum erlendis hefur kom-
ið okkur til góða. Sömuleiðis höfum
við notið samstarfs við Hampiðjuna í
erlendis og síðast en ekki síst eigum
við trausta fylgismenn, þar sem eru ís-
lenskir skipstjórar sem starfa erlendis,
t.d. í Chile, Nýja-Sjálandi og Afríku,"
segir Atli Már Jósafatsson.
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með breytingarnar.
Um borð í Emmu VE-219 er olíuhreinsikerfi frá
Europa Filter tengt við gír aðalvélar og vindukerfi.
MERGI ehf.
Fornubúðir 12, 220 Hafnarförður, Sími/fax: 555 1334,
GSM: 893 8065, E-mail: burkni@skima.is
EMMAVE 219
50 mm