Ægir - 01.02.2000, Síða 6
I LEIÐARI
Pétur Bjarnason,
framkvæmdastjóri
Fiskifélags íslands
Lúðvik Krístjánsson,
fyrrverandi ritstjóri Ægis, látinn
Lúðvík Kristjánsson rithöfundur er látinn í hárri elli.
Vegir Lúðvíks og Fiskifélagsins lágu víða og lengi
saman. Lúðvík var kennari að mennt og kenndi um
árabil á námskeiðum á vegum félagsins sem höfðu að
markmiði að auka hæfni sjómanna til starfa. Lúðvík
var ritstjóri Ægis um átján ára skeið frá 1937 til 1954
og stundaði síðar ýmis fræði- og útgáfustörf, bæði í
samvinnu við Fiskifélagið og á öðrum vettvangi.
Eftir Lúðvík liggja margar bækur og ritgerðir, eink-
um sagnfræðilegs eðlis. Hans verður þó án efa lengst
minnst fyrir bækurnar „Islenskir sjávarhættir" sem
komu út á árunum 1980 til 1986. „Islenskir sjávar-
hættir" er grundvallarrit um sögu sjósóknar og með-
ferð sjávarfangs á íslandi og er hæpið að aðrar þjóðir
geti gengið að viðlíka riti til þess að fræðast um at-
vinnuvegi sína, sögu þeirra og verklag. „Islenskir sjáv-
arhættir" eru alls fimm bækur, hver um 500 bls. og
engum, sem bækurnar handleikur, dylst hvílíkt þrek-
virki býr að baki ritun þeirra.
Lúðvík Kristjánsson átti að baki langt og gæfuríkt
ævistarf. Honum hlotnuðust margvíslegar viðurkenn-
ingar. Árið 1981 var hann gerður að heiðursfélaga
Fiskifélags Islands og árið áður var honum veitt heið-
ursdoktorsnafnbót Háskóla Islands. Árið 1988 fékk
hann Gullverðlaun Sjómannadagsráðs og hann var fé-
lagi í Vísindafélagi Islendinga frá árinu 1961. Þessar
viðurkenningar og fleiri, sem ekki eru
nefndar, sýna að samtímamenn Lúð-
víks kunnu að meta störf hans og
framlag hans til íslensks sjávarútvegs
er ómetanlegt.
Fiskifélag Islands hefur tekið mikl-
um breytingum frá því Lúðvík Krist-
jánsson var þar á vettvangi. Þessar
breytingar ná til skiplags, verkefna og
starfsmanna. Þeir sem nú starfa hjá fé-
laginu hófu störf löngu eftir að Lúðvík
lét þar af störfum. Engu að síður ber
nafn Lúðvíks þar enn oft á góma og
framlag hans til félagsins og þekking-
ar á íslenskum sjávarútvegi er í háveg-
um haft.
Fiskifélag Islands minnist Lúðvíks
Kristjánssonar með þakklæti og send-
ir ástvinum hans samúðarkveðjur.